sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Það er þetta með ríkisreksturinn, það er svolítið erfitt að alhæfa um hann. Ég hef t.d. verið gagnrýnandi stærstu ríkisábyrgðar síðari tíma, Kárahnjúkavirkjunar í þágu eins fjölþjóðlegs álfyrirtækis. Það eru Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin og ýmsir aðrir hér á þingi sem studdu þá ríkisvæðingu.
Ég er hins vegar hlynntur því að reka heilbrigðisþjónustuna á vegum almennings, á vegum ríkis og sveitarfélaga. Ég tel að þegar á heildina er litið hafi tekist mjög vel til og í íslenska heilbrigðiskerfinu hafa verið stórstígar framfarir á undanförnum árum af tæknilegum toga, einnig skipulagslegum toga. Menn eiga ekki að gera lítið úr því.
Á Landspítalanum hefur t.d. samkvæmt skýrslum Ríkisendurskoðunar orðið betri nýting á fjármunum vegna markvissra aðgerða á hverju einasta ári. Við erum ekki að lasta það sem vel er gert og við teljum mikið svigrúm til frekari umbóta og erum því að sjálfsögðu hlynnt. En þegar um það er að ræða að hleypa fjárfestingarkapítali inn í heilbrigðisþjónustuna eða grunnþjónustu menntakerfisins, fjárfestingarkapítali sem hefur það að markmiði að taka fjármuni út úr kerfinu ofan í eigin vasa, drögum við línuna. Það er á þessu sviði sem ágreiningur er milli Sjálfstæðisflokksins annars vegar og okkar hins vegar. Við erum að sjálfsögðu með framförum, við horfum á það sem vel hefur verið gert í íslenska heilbrigðiskerfinu, við horfum á þær miklu framfarir sem þar hafa átt sér stað. Við höfum verið talsmenn þess að bæta það meira, þetta er grunnþátturinn í okkar pólitík, þ.e. að efla velferðarþjónustu samfélagsins og treysta innviði þess. Þar er að sjálfsögðu heilbrigðisþjónustan í (Forseti hringir.) lykilsæti.