sjúkratryggingar.
Virðulegi forseti. Við eigum alltaf að standa vörð um velferðarþjónustuna og það er mikilvægt að horfa á allar breytingar á henni gagnrýnum augum. Það er hlutverk okkar og það er líka hlutverk stjórnarandstöðu hverju sinni. Samfylkingin er velferðarflokkur og við stöndum vörð um velferðarþjónustuna, félagslega velferðarþjónustu. Við höfum skoðað þetta þingmál mjög gaumgæfilega og við styðjum það vegna þess að það veikir ekki velferðarþjónustuna, það eflir hana frekar.
Hér lítum við til Norðurlandanna, þau eru fyrirmynd okkar í þessu máli. Það er engin einkavæðing á ferðinni í þessu þingmáli, ég held að menn verði að gera sér grein fyrir því vegna allra upphrópananna sem maður hefur heyrt í umræðunni í dag. Við erum að nútímavæða heilbrigðisþjónustuna og koma okkur upp tæki til að geta farið betur með almannafé.
Þessi leið hefur oft verið skoðuð á undanförnum árum og við höfum oft rætt það í þingsölum hvernig við getum farið betur með almannafé, hvernig við eigum að kostnaðargreina þjónustuna og styrkja ríkið sem kaupanda í þessari þjónustu. Það þarf ekki annað en nefna Jónínunefndina, lögin um heilbrigðisþjónustu. Það hefur verið talað um þetta allt í dag og ég veit að slík vinna hefur farið fram í heilbrigðisráðuneytinu á undanförnum árum. Hér er verið að huga að hagkvæmni, bæta nýtingu þeirra fjármuna sem fara til heilbrigðisþjónustunnar án þess að það komi á nokkurn hátt niður á þjónustunni. Við viljum auka gagnsæi en því miður vantar það í dag, það vantar gagnsæi í reksturinn á heilbrigðisþjónustunni. Við erum að reyna að bæta það ástand og munum gera það með því verkfæri sem hér er verið að setja á laggirnar. Þessu fyrirkomulagi verður komið á á næstunni, þetta fer hægt af stað því að við ætlum auðvitað að læra af mistökum Svía sem fóru allt of hratt í málin eins og þeir bentu okkur á á fundum með þeim nú á dögunum þegar við kynntum okkur hvernig þessu hefði verið háttað í Svíþjóð. Þar var samstaða um að koma þessu fyrirkomulagi á og allir flokkar voru sammála um það. Það hefur enginn lagt til að bakka út úr þessu kerfi. Við töluðum við fulltrúa í stærsta léninu sem er Stokkhólmslén sem er með mjög stóran hluta af allri þjónustu, við töluðum bæði við stjórn og stjórnarandstöðu um þetta fyrirkomulag og þeir voru gersamlega sammála um ágæti þessa fyrirkomulags. Sama má segja um Birgi Jakobsson sem er yfir stærsta sjúkrahúsi á Norðurlöndunum, Karolinska sjúkrahúsinu og Huddinge, sem sagði okkur frá því hvað það væri til mikilla bóta að hafa komið á þessu kaupenda- og seljendafyrirkomulagi.
Þetta frumvarp snýst um að koma á fót sjúkratryggingastofnun. Það felur í sér eins og komið hefur fram í umræðunni í dag að það ber að kostnaðargreina þjónustuna. Það leggur til breytileg fjárlög í stað fastra sem er náttúrlega löngu tímabært enda úrelt að vera með föst fjárlög í heilbrigðisþjónustunni. Það eru aðeins Ísland og Albanía sem hafa það fyrirkomulag. Þegar þetta verður komið á verða samningarnir á einni hendi og þá hafa menn yfirsýn yfir alla samninga en áður voru þeir hjá fleiri en einum aðila og engin sameiginleg sýn yfir þá. Þeir voru hjá samninganefnd Tryggingastofnunar ríkisins, hjá ráðherra og samninganefnd heilbrigðisráðuneytisins þannig að þetta fyrirkomulag eykur mjög yfirsýn yfir samninga í heilbrigðisþjónustu.
Það er tryggt í þessu frumvarpi að aðgangur sjúklinga er óháður efnahag, enginn getur keypt sig fram fyrir í röðinni, það er alveg tryggt. Það eru ekki neinar nýjar gjaldtökuheimildir í frumvarpinu. Það er verið að koma á kaupenda- og seljendamódeli sem Svíar hafa verið með frá 1992 sem eins og ég sagði áðan allir eru sáttir við og var samstaða um hjá öllum flokkum að koma á. Þetta skerðir alls ekki réttindi sjúklinga. Þeir sem halda því fram fara með fleipur því að ég geri ráð fyrir að sjúklingar muni ekki gera sér grein fyrir að það sé búið að gera þessar breytingar. Þetta mun ekki koma beint við sjúklinginn nema kannski að þeir verða varir við að þeir þurfa ekki að bíða eins lengi eftir aðgerðum. Það verður unnt að stytta biðina eins og t.d. hefur verið gert núna með því að vinna á biðlistunum t.d. með augnasteinaaðgerðirnar. Ég held að við ættum að horfa á það útboð sem sýnir okkur hvernig við getum beitt aukinni hagkvæmni. Það var margfalt ódýrara að fá sömu þjónustu fyrir þá sem biðu á stofu úti í bæ en á Landspítalanum sem er auðvitað eðlilegt vegna þess að Landspítalinn er með meiri yfirbyggingu, en það var ekkert síðri þjónusta fyrir þá sem fengu þjónustuna úti í bæ. Það var verið að stytta biðina og nokkur hundruð sjúklingar sem ella hefðu þurft að bíða fengu þessa þjónustu mun fyrr. (PHB: Og sköpuðu arð.) Já, og sköpuðu arð, segir hv. þm. Pétur Blöndal sem passar upp á það. Það er auðvitað hægt að taka miklu fleiri dæmi. Það segir sig sjálft ef við horfum á dæmin hvað hægt er að hagræða og bæta í rauninni þjónustuna, þó að ég efist um eins og ég sagði áðan að sjúklingarnir geri sér grein fyrir að þarna sé verið að breyta einhverju. Ég velti því fyrir mér, ætli fólk velti því almennt fyrir sér eða viti þegar það fer til sérfræðings hvort þar sé einkarekstur á ferðinni? Allir sérfræðilæknar sem eru með stofur úti í bæ eru með einkarekstur. Eru þeir af hinu illa? Ég velti því fyrir mér á hvaða róli við erum þegar hlustað er á umræðuna eins og hún hefur verið í dag. Ég bið fólk að tala ekki svona því að þarna erum við með ágætisþjónustu, alla sérfræðiþjónustuna í einkarekstri og ég veit ekki betur en allir hafi verið sáttir við það fyrirkomulag.
Með þessari nýju stofnun verður aukið eftirlit með samningum og heilbrigðisverkum, það verður aukið og enn bætir heilbrigðisnefnd í með breytingartillögu sem liggur fyrir í þessari umræðu. Það verður ekki hægt að velja úr ábatasöm verk. Ég heyrði að einhver talaði um það áðan að einkaaðilar mundu velja auðveldustu verkin. Það er ekki heimilt. Það er tekið á því í lögunum. Varðandi eftirlitið þá ætla ég að nefna það líka að það eru fleiri en sjúkratryggingastofnun sem eru með eftirlit. Það er náttúrlega heilbrigðisráðherra og ekki síst landlæknir sem á að sinna því eftirliti.
Svo það atriði að fjármagnið fylgi sjúklingnum. Það þýðir að það verður ekki kvíðvænlegt fyrir sjúkrastofnun að taka inn sjúkling sem er mikið veikur, á dýrum lyfjum og þarfnast kostnaðarsamra aðgerða eins og kannski má ætla ef farið er að líða á árið og það koma inn þungir sjúklingar hjá stofnun sem stendur frammi fyrir föstum fjárlögum. Í þessu fyrirkomulagi fylgir fjármagnið sjúklingnum, hægt er að taka inn sjúklinga og þeir fá sína þjónustu vegna þess að fjármagnið á að fylgja þeim. Sjúkratryggingastofnunin styrkir hið opinbera sem kaupanda að heilbrigðisþjónustu og þarna þarf að safnast upp þekking og reynsla á einni hendi til að sinna þessari þjónustu, þeim viðskiptum sem þarna fara fram. Menn töluðu einmitt um það í Svíþjóð hve það væri mikilvægt að þekking væri fyrir hendi til að efla kaupandann gagnvart þeim sem veita þjónustuna.
Ég nefndi áðan að verið er að setja á eina hendi samninganefndir sem hafa sinnt þessu þannig að þetta verður ekki á mörgum stöðum. Þetta ætti að tryggja gæði, öryggi og árangur og hagkvæmni í þeirri þjónustu sem samið er um. Hingað til hefur þekkingarskortur hjá kaupandanum, ríkinu, gert það að verkum að ríkið hefur staðið höllum fæti gagnvart seljandanum þegar það hefur verið að kaupa þjónustu. Mig langar til að mótmæla þeim málflutningi sem hefur verið ríkjandi í dag hjá vinstri grænum þar sem alið er á óttanum við einkareksturinn. Einn þriðji af öllum rekstri í heilbrigðisþjónustunni er í einkarekstri í dag og eins og ég nefndi áðan með sérfræðilæknana þá er ekkert að óttast. Við horfum til Norðurlandanna í þessum efnum, við horfum til Svía. Farið verður hægt í sakirnar eins og ég sagði. Það er mjög mikil vinna fram undan hjá þeim sem fara að sinna þessum verkum, að kostnaðargreina, bæði hjá sjúkratryggingastofnuninni og heilbrigðisstofnununum. Þar er mjög mikið verk fram undan sem fara þarf í og þó að nokkuð sé komið áleiðis í þeim efnum á enn eftir að vinna þar heilmikið verk.
Mig langar að koma aðeins inn á menntaþáttinn því að hann kom aðeins til umræðu fyrr í dag. Það er alveg ljóst að menntaþættinum verður sinnt áfram á háskólasjúkrahúsunum. Tekið er mjög skýrt fram í frumvarpinu að sú þekking sem nauðsynleg er til að sinna kennsluhlutverkinu verður til staðar á þeim stofnunum, þau verkefni sem nauðsynleg eru í kennsluhlutverkinu verða ekki tekin út af Landspítala eða FSA. Svo má auðvitað gera ráð fyrir því að einhvern tíma í framtíðinni fari læknanemar inn á aðrar stofnanir þar sem er verið að sinna öðrum verkum og verði líka þar, ég útiloka það ekki. Menntaþættinum er sinnt á t.d. Landspítalanum og svo verður auðvitað áfram.
Eins og ég nefndi horfum við til Norðurlandanna sem hafa verið fyrirmynd okkar í velferðarþjónustunni. Það er ekkert að óttast, sjúklingar munu ekki finna fyrir þessu nema þá kannski í styttri bið. Það er verið að koma á verkfæri til að auðvelda hinu opinbera að nýta betur þá miklu fjármuni sem fara í heilbrigðisþjónustuna, sjúklingum verður ekki mismunað eftir efnahag og enginn getur borgað sig fram fyrir. Hér er verið að koma á bættum vinnubrögðum í heilbrigðisþjónustunni og ástæðulaust að óttast það, þetta er allt til mikilla bóta.