sjúkratryggingar.
Frú forseti. Ég vil trúa því að hæstv. iðnaðarráðherra hafi dottað í raun og veru eins og mér sýndist hann gera undir ræðu minni vegna þess að það að ég hafi ekki gagnrýnt umrætt frumvarp kemur mér mjög spánskt fyrir sjónir. Ég gagnrýni einmitt grunnstef frumvarpsins sem er markaðsvæðing heilbrigðiskerfisins.
Það sem ég sagði aftur á móti um þetta frumvarp er að ekki er allt slæmt við það og ég get alveg viðurkennt að inni í því eru mörg praktísk og góð tæki fyrir stjórnvöld sem má nota til skynsamlegra hluta til aukinnar hagræðingar í heilbrigðiskerfinu. Ég þræti alls ekki fyrir að henni þurfum við að ná fram. Það er mjög mikilvægt. Heilbrigðiskerfið tekur mjög mikið til sín og getur í rauninni gleypt fé út í það óendanlega liggur mér við að segja.
Ég tel að í þessu frumvarpi, þótt ég hafi ekki tök á því á einni mínútu að rekja það í smáatriðum, séu ákveðin tæki til handa stjórnvöldum til að útvista verkefni þar sem það á við og beita hagkvæmustu leiðum. Ég er ekki í grundvallaratriðum alltaf á móti því að það sé leitað til sjálfseignarstofnana eða einkafyrirtækja með ákveðna þjónustu.
Ég held aftur á móti, eins og ég lagði áherslu á áðan og eyddi mestum tíma ræðu minnar í að útskýra og get ekki rakið aftur á 42 sekúndum, að hugmyndin að markaðshyggjunni sem hér er grunnstef, að hægt sé að markaðsvæða heilbrigðisþjónustu og leggja heilsu okkar og vandamál sem við komum með inn á heilbrigðisstofnanir eða inn á sjúkrahús á vogarskál peninga í hvert sinn, feli í sér misskilning, að við séum með þeim hætti sem mannlegar verur mælanleg í krónum og aurum.
Það að ég hef ekki sagt neitt neikvætt um þetta frumvarp — ég verð bara að endurtaka að ég held að það hljóti að vera að hæstv. iðnaðarráðherra, og ég get alveg fyrirgefið honum það, hafi aðeins dottað. (Forseti hringir.)