135. löggjafarþing — 119. fundur,  9. sept. 2008.

sjúkratryggingar.

613. mál
[18:42]
Hlusta

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég vil fyrst vegna ummæla hv. þm. Bjarna Harðarsonar um það öngstræti sem nýfrjálshyggjan og markaðshyggjan í heiminum öllum er komin í benda á hversu öfugsnúið það er að á sama tíma og ríkisstjórn Bush í Bandaríkjum Norður-Ameríku er að þjóðnýta banka og íbúðalánasjóði þá skulum við hér uppi á Íslandi innleiða lög sem thatcherisminn bjó til í Bretlandi 1991 og til hvers? (Gripið fram í.) Til þess að einkavæða heilbrigðiskerfið sem er okkar grunnþjónusta og hefur fylgt frá upphafi þessu norræna módeli sem við viljum halda í.

Ég lít svo á að frumvarpið sem hér er til umræðu sé atlaga að þeirri góðu heilbrigðisþjónustu sem við höfum haft og viljum búa við. Árangur þessarar heilbrigðisþjónustu, skipulags hennar, kostunar, aðgangs að henni er hver? OECD segir að hann sé öfundsverður. Árangurinn er öfundsverður að mati OECD. Eins og ég sagði er þetta byggt á norrænu módeli, á félagslegu réttlæti, og Svíþjóð hefur um langa tíð verið eins konar fyrirmynd ekki bara okkar Íslendinga í því heldur margra annarra þjóða. En það er af sem áður var í Svíaríki vegna þess að undir hægri stjórn bæði í ríki og í Stokkhólmi þá hefur þar margt breyst eins og ég mun koma að í ræðu minni á eftir.

Hér er látið í veðri vaka að þetta mál snúist um vinnuaðferðir, að þetta mál snúist um tæknilegar breytingar, að þetta snúist um DRG, að þetta snúist um kostnaðargreiningu og reyndar um bókhald. En það er alrangt. Með þessu frumvarpi er, eins og hér hefur verið bent á, stigið það óheillaspor að fleygja heilbrigðisþjónustunni okkar út á markaðinn, út á markaðstorgið þar sem undirboð og samkeppni eiga að hafa völdin og eru mikilvægari en samþætting og gæði sem þessi þjónusta þarf að byggja á til að við glötum ekki þeim árangri sem við höfum. Það á að skipta þessari heildstæðu þjónustu okkar upp í tvennt, kaupendur og seljendur, og það á að setja þetta undir viðskiptalög og samkeppnislög. Þetta eru meginathugasemdir okkar vinstri grænna við þetta frumvarp. Þetta gerir það að verkum að við getum ekki samþykkt frumvarpið.

En það eru fleiri atriði hápólitísk í þessu máli. Þrjú atriði vil ég nefna. Ég vil nefna það hversu valdheimildir ráðherra eru auknar mikið og ég vil nefna það sem ég nefndi fyrr í andsvörum í dag, þá ósvinnu sem ég vil kalla að banna þessari fyrirhuguðu sjúkratryggingastofnun að semja við stéttarfélög og fagfélög í heilbrigðisþjónustu eins og verið hefur um árabil. Til hvers er verið að banna þetta? Við vitum að samkeppnislög eru orðin eins og kirkjan var forðum. Þetta er meira að segja þannig að Bændasamtökin mega ekki halda fund öðruvísi en Samkeppnisstofnun komi með veigamiklar athugasemdir. (Gripið fram í.) Nú er svo komið að stéttarfélög mega ekki semja í heilu lagi, nýta til þess fagþekkingu sína og samtakamátt til að semja um verð fyrir sína þjónustu. Þegar Samkeppnisstofnun kemur á fund heilbrigðisnefndar þá tala menn þar um stéttarfélögin sem hópa fólks sem rottar sig saman. Ég veit eiginlega gegn hverju. En þetta er undarleg trú sem menn hafa tekið. (Gripið fram í.)

Við höfum sem sé fulla ástæðu til að óttast að heimildir til útboðs sem vissulega voru í heilbrigðislögunum ársgömlum — og þingmenn Vinstri grænna greiddu atkvæði gegn því ákvæði frumvarpsins bara svo það sé í heiðri haft, hv. formaður heilbrigðisnefndar, sem alltaf gleymir því í þeirri umræðu — við höfum ástæðu til að óttast vegna stefnu núverandi ríkisstjórnar og vegna yfirlýstrar stefnu hæstv. heilbrigðisráðherra að þessar heimildir verði nýttar í vaxandi mæli til að flýta fyrir einkavæðingu í þjónustunni vegna þessarar yfirlýstu stefnu. Menn hafa verið hér á flótta undan stefnu bæði ríkisstjórnarinnar og heilbrigðisráðherrans. Ég vil því, frú forseti, minna á að í stjórnarsáttmálanum segir um heilbrigðismálin að það verði skapað svigrúm til fjölbreytilegri rekstrarforma í heilbrigðisþjónustu. Við vitum vel hvað þetta þýðir. Þetta er einkareksturinn og einkavæðingin. Heilbrigðisráðuneytið mun samkvæmt stefnuyfirlýsingu heilbrigðisráðherra frá 26. febrúar 2008 vinna að stefnumótun um eignarhald og yfirstjórn heilbrigðisstofnana og heilbrigðisfyrirtækja í eigu ríkisins, mun vinna að stefnumótun um eignarhald heilbrigðisstofnana og heilbrigðisfyrirtækja í eigu ríkisins. Hvað þýðir þetta? Meðal annars svo sem um skipulag og rekstrarform. Það þarf engar orðabækur eða orðhengilshátt til að fólk skilji hvað í þessu felst. Menn eiga ekki að þurfa að vera á miklum flótta undan þessari stöðu.

Við göngum ekki til þessa máls með bundið fyrir bæði augu. Við gerum okkur fyllilega grein fyrir því hvað hér er á ferð, vinstri græn, vegna þess að við lítum til reynslu annarra þjóða, meðal annars Svía og Breta af því sem þar hefur verið að gerast á undanförnum áratugum og það er dapurlegt að við skulum taka upp svona mikla kerfisbreytingu í heilbrigðisþjónustunni okkar án þess að um það hafi farið fram gagnrýnin umræða í samfélaginu öllu.

Við höfum lagt fram þingsályktunartillögu um að gerð verði úttekt á einkavæðingunni og gerð rannsókn á árangri einkavæðingar hér á landi því við höfum nú þegar nokkra reynslu af slíku og bara á undanförnum mánuðum, undanförnum vikum höfum við mýmörg dæmi um það hversu illa hefur tekist til í einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Það er vísað til þess í nefndaráliti okkar fulltrúa VG í heilbrigðisnefnd hvernig Sóltúnssamningurinn hefur leikið íslenska skattgreiðendur sem þurfa að borga ekki aðeins 14–17% meira fyrir hvert pláss þarna heldur borga eftiráreikninga sem eru svo háir að heilbrigðisráðuneytinu blöskrar og þar stefnir allt í dómsmál. En samningurinn er bundinn til 25 ára, takk fyrir, og engin leið að losna úr honum. Þetta var flaggskipið. En við minnum líka í nefndaráliti okkar á fleiri dæmi sem núna á undanförnum vikum og mánuðum hafa sýnt að þessi einkarekstur, að þessi einkavæðing sem menn eru að fara að innleiða í stórum stíl er dýrari kostur en opinber rekstur.

Það var nokkuð rætt um það fyrr í dag að við fengum leyfi Allyson M. Pollock til að birta ágætan fyrirlestur hennar í nefndaráliti okkar. Ég vil biðja menn um að líta aðeins til þess sem hún segir þar um einkavæðingarferlið í Bretlandi sem hún skipti niður í sjö skref og hugleiða hvar við séum stödd á þeirri vegferð. Við erum komin langt yfir skref eitt og tvö. Skref þrjú erum við að taka hér, þriðja skrefið sem Bretar tóku 1991. En fjórða skrefið sem hún þar bendir á er þegar stofnanirnar fara að einkavæða sig innan frá, þ.e. breyta rekstrarforminu og koma sér út úr opinberum rekstri. Ég vil í því sambandi minna á hugmyndir sérstakrar nefndar sem hæstv. heilbrigðisráðherra skipaði undir forustu Vilhjálms Egilssonar um rekstrarform meðal annars Landspítala – háskólasjúkrahúss. Mig langar til að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra: Hvar er það nefndarstarf statt? Formaður nefndarinnar kom með tillögu um það að hlutafélagavæða einmitt Landspítala – háskólasjúkrahús og ég man ekki betur en sá sem nú hefur nýlega verið skipaður aðstoðarforstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss hafi tekið undir að sjálfsagt væri að gera það. Þetta er það sem Allyson M. Pollock bendir á að sé fjórða skrefið í þessari vegferð. Svo minni ég á fimmta og sjötta skrefið sem hún þar rekur. Við þekkjum það líka héðan. Það er sem sagt búið að taka hér upp útboð á læknisþjónustu svo sem eins og augnaðgerðum og mjaðmaskiptaaðgerðum eins og hún nefnir dæmi um og það er líka í stórum stíl verið að einkavæða byggingar á vegum ríkisins, húsnæði, ýmist með því að selja það og endurleigja með áratugasamningum eða með því að reisa í einkaframkvæmd hús fyrir þjónustu með sama hætti.

Hér í dag var fjallað aðeins um ljósmæður og ég vil vekja athygli á breytingartillögu okkar vinstri grænna sem gerir ráð fyrir því að sjúkratryggingar greiði kostnað við þjónustu ljósmæðra í sængurlegu í heimahúsum. Hvers vegna skyldi þessi tillaga vera fram komin? Við hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson áttsum nokkurn orðastað um það hér í dag. Ég vil vekja athygli á því að 80% fæðandi kvenna á höfuðborgarsvæðinu nýta sér þessa þjónustu samkvæmt samningi — sem hvað? — Ljósmæðrafélag Íslands gerði við Tryggingastofnun ríkisins, sem Ljósmæðrafélag Íslands gerði fyrir hönd sinna félagsmanna við Tryggingastofnun ríkisins. Það er það sem þið ætlið að banna, ágætir þingmenn stjórnarmeirihlutans. Við leggjum til breytingartillögur sem gera það mögulegt annars vegar að heimilað verði að semja við stéttarfélög og fagfélög í heilbrigðisþjónustu þegar gengið verður til samninga og hins vegar að þjónusta ljósmæðra í heimahúsum verði greidd af sjúkratryggingum eins og þjónusta við fæðingar í heimahúsum. (Gripið fram í.) Það er gert í dag, hv. formaður heilbrigðisnefndar, samkvæmt samningi sem Ljósmæðrafélag Íslands gerði við Tryggingastofnun ríkisins. Samkvæmt því frumvarpi sem þú hefur lýst yfir stuðningi við verður það bannað eftir 1. október næstkomandi. (Forseti hringir.)

(Forseti (ÁRJ): Ekki beina orðræðu.)

„Ekki beina orðræðu,“ segir forseti. Ég átta mig ekki alveg á í hverju sú athugasemd er fólgin.(Gripið fram í.)

Frú forseti. Mig langar til að víkja aðeins að heimsókn okkar til Stokkhólms. Ég nefndi áðan að það væri af sem áður var í Svíaríki því Svíþjóð er því miður ekki lengur sú fyrirmynd sem hún löngum var hvað varðar félagslegt réttlæti í heilbrigðisþjónustu og þar er nú gríðarlega mikil umræða um hvert stefni. Ég sé að hv. nefndarmaður í heilbrigðisnefnd, Ragnheiður Ríkarðsdóttir, hristir höfuðið. Ég trúi því vel að hún og fleiri þingmenn í heilbrigðisnefnd hafi ekki orðið mikið varir við þessa gagnrýnu. En þeir sem lögðu sig eftir því í þessari ferð urðu hennar mjög varir.

Ég vil nefna (Gripið fram í.) eitt í því sambandi. Nú stendur til að opna barnasjúkrahús, prívat sjúkrahús fyrir börn í Stokkhólmi í lok september. Þetta sjúkrahús á einungis að þjóna börnum þeirra foreldra sem geta greitt beint úr buddunni fyrir þjónustuna. Þetta finnst mörgum Svíum hvorki samrýmast barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna né viðteknum hugmyndum þar í landi um félagslegt réttlæti. Um þetta fjallar gagnrýni manna í umræðunni í Svíþjóð þessa dagana.

Ég vil nefna líka, af því að menn tala um að þessari einkavæðingu fylgi aukið valfrelsi, að heilsugæslan í Stokkhólmi er að hálfu einkavædd og það kom fram í viðræðum heilbrigðisnefndar við þá sem stjórna þeirri þjónustu að það eru ekki sjúklingarnir eða fólkið í Stokkhólmi sem velur sér heilsugæslustöð. Það eru einkafyrirtækin sem reka heilsugæslustöðvarnar sem velja sér kúnnana. Með hverju? Með því að setja sig niður í þeim hverfum þar sem ekki eru mikil félagsleg vandamál, þar sem ekki er mikil hætta á að séu margir aldraðir eða fólk sem hefur viðvarandi heilbrigðisvandkvæði og þarf á þungri þjónustu að halda. Þetta er valfrelsið sem þetta kerfi hefur innleitt í Svíþjóð og ég get ekki stillt mig um, frú forseti, að minna á það. Þarna hefur það gerst sem menn þekkja að er fylgifiskur þessa kerfis víða um heim (Forseti hringir.) að einkaaðilarnir plokka rúsínurnar úr kökunni. Þeir fleyta rjómann ofan af og skilja hið opinbera heilbrigðiskerfi eftir með þyngstu, erfiðustu (Forseti hringir.) og dýrustu tilfellin.