135. löggjafarþing — 119. fundur,  9. sept. 2008.

sjúkratryggingar.

613. mál
[20:02]
Hlusta

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég veit eiginlega ekki hverju ég er að svara vegna þess að til mín var ekki beint neinni spurningu heldur einfaldlega bent á hvað vinstri grænum þætti um skýrslur OECD hvernig þeir vildu meðhöndla þær.

Hv. þm. Álfheiður Ingadóttir varpaði ekki einni einustu spurningu til mín, hæstv. forseti, sem ég get svarað.