afdrif þingmannamála – efnahagsmál.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Katrínu Jakobsdóttur fyrir að taka upp þetta mál. Ég hef margoft rætt að það þurfi að efla stöðu þingsins og huga betur að aðgreiningu og þrískiptingu valdsins.
Frumvörp sem samin eru í ráðuneytum og jafnvel í einstökum stofnunum sem sjá um að framkvæma viðkomandi lög leiða oft til þess að sá sem semur frumvarpið er í rauninni að smíða vopn í hendurnar á sér gegn borgurum. Það er miklu betra að kjörnir fulltrúar smíði þessi vopn og gæti að því að þau séu ekki of beitt.
En svo er þingið líka að vasast í framkvæmdum. Fjárlagafrumvarpið er fullt af skipunum frá þinginu til framkvæmdarvaldsins um hvað það eigi að gera í einstökum málum. Þar erum við að grípa inn í starfsemi framkvæmdarvaldsins og ég er á móti því líka. Ég vil því endilega að þingið taki sér tak og framleiði fleiri lög og samþykki og semji sjálft fleiri lög sem það afgreiðir.
Hingað til hefur verið mjög lítið um það að þingmannafrumvörp hafi verið samþykkt. Það er breyting núna. Það er mikil breyting. Áður fyrr var það þannig að það var tekið eitt frumvarp frá stjórnarandstöðunni, eins og dúsa og það var svona einhver góðmennska að það væri samþykkt, eitthvað sem skipti ekki máli.
Ég vil að þessu verði snúið við, að ráðuneytin snúi sér til þingnefnda með ákveðin mál og segi: Við viljum fá þetta samþykkt, eða einstaklingar eða samtök og síðan ákveði þingnefndirnar hvort málið sé þess virði að flytja það og semji viðkomandi lög og sendi þær til umsagna til ráðuneyta og aðila úti í bæ til að sjá hvort það er framkvæmanlegt. Núna erum við í rauninni í því hlutverki að endurskoða frumvörp frá ríkinu og við erum að kanna hvernig gengur að framkvæma þau.