135. löggjafarþing — 120. fundur,  10. sept. 2008.

afdrif þingmannamála – efnahagsmál.

[13:54]
Hlusta

Guðmundur Steingrímsson (Sf):

Herra forseti. Mig langaði að taka til máls í framhaldi af ávarpi hv. þm. Katrínar Jakobsdóttur. Það vill nefnilega svo til að ég get ekki orða bundist vegna þess að ég hef tekið saman tölur um nákvæmlega þessi mál og birt grein í tímaritinu Herðubreið og ég mæli með þeirri lesningu fyrir alla þingmenn. Ég skoðaði níu ára tímabil til ársins 2007 og skoðaði þar afdrif þingmannamála og stjórnarþingmannamála, þingsályktana og annars slíks.

Tölurnar eru ískyggilegar og benda til þess að þetta er djúpstæður og líklega langvarandi vandi sem þarf að takast á við með einhverjum markvissum aðgerðum. Mörg hundruð frumvörp voru lögð fram af hálfu stjórnarandstöðunnar á þessu tímabili og fimm voru samþykkt. Sem er langt innan við 1%.

Og staðan er ekkert betri þegar kemur að stjórnarþingmönnum. Þeir leggja líka fram mikið af frumvörpum og aðeins örfá eru samþykkt. Þetta er kannski ískyggilegast þegar maður skoðar þingsályktunartillögur. Margar þeirra eru þannig að þær ættu að renna hérna í gegn, í rauninni mjög einfaldlega vegna þess að þær varða oft og tíðum sjálfsagða hluti. En einungis nokkur prósent af þeim sem lagðar eru fram af stjórnarþingmönnum og stjórnarandstöðuþingmönnum eru samþykkt.

Ein þeirra sem var samþykkt varðaði það að setja fánann hérna við hliðina á púltinu. Það var Guðmundur Hallvarðsson sem kom því í gegn á einhverjum lokadögum þingsins. Það er ákveðinn mælikvarði á að þingið er ekki alveg nógu gott eins og er ef einungis örfáar, jafnvel slíkar tillögur komast ekki í gegn. Ég mæli með að við skoðum þetta og eins háskólaritgerð Eiríks Þórleifssonar stjórnmálafræðings sem skoðaði þessi mál, um dagskrárvald á Alþingi. Niðurstaðan er í stuttu máli sú að Alþingi er auðvitað mikilvæg stofnun en hún er ekki uppspretta laga.