staða landbúnaðarins og matvælaframleiðslu.
Frú forseti. Ég þakka fyrir að þessi umræða skuli komast að á þessum fáu þingdögum. Það er auðvitað margt sem hér væri þarft og brýnt að ræða og víða erfiðleikar í okkar þjóðarbúskap en við þingmenn VG höfum þó engu að síður ákveðið að setja í forgang og ræða stöðu eða vanda einnar atvinnugreinar sérstaklega þar sem er landbúnaðurinn.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að landbúnaðurinn hefur fengið á sig gríðarlegar kostnaðarhækkanir að undanförnu þannig að fá dæmi eru um annað slíkt. Þannig hefur áburður hækkað um 70–80% ef ekki meira milli ára, olíuverðshækkun er gríðarleg, um 60% eins og það var metið í sumar miðað við þáverandi verð, fóðurkostnaður líklega hækkað um 50%, þjónusta dýralækna um 25% og þannig mætti áfram telja. Er þá ónefndur fjármagnskostnaður sem hækkað hefur gríðarlega á landbúnaðinn bæði vegna hás vaxtastigs í landinu og líka vegna þess að stofnlánasjóður eða fjárfestingarlánasjóður landbúnaðarins var lagður niður eða seldur og í kjölfarið fylgdu miklar hækkanir á fjármagnskostnaði eins og m.a. mátti sjá af gögnum á fundi Landssambands kúabænda fyrir skemmstu.
Hafa verður í huga að fjárbinding er mikil í búrekstri. Þannig hafa kúabú stækkað og bændur fjárfest í auknum framleiðsluheimildum og í sauðfjárbúskap er framleiðsluferlið mjög langt, allt í tvö ár má segja, og birgðahald allt árið eftir sláturtíð. Það sakna því margir vinar í stað þar sem var stofnlánadeild landbúnaðarins eða lánasjóðurinn þegar bændur þurfa núna að reiða sig á yfirdrátt til að fjármagna búrekstur sinn, í mörgum tilvikum með 25% vöxtum eða hvað það nú er. Það er erfitt að meta nákvæmlega hvernig þessar snöggversnandi aðstæður hafa leikið greinina eða afkomu í henni en þó er flest sem bendir til að framlegð sé nánast horfin úr helstu greinum íslensks landbúnaðar.
Á árunum 2006 og 2007 hækkaði fjármagnskostnaður kúabænda greinilega, á því hefur verið gerð úttekt. Áburðarverðshækkunin ein er talin þýða að bændur hefðu þurft að fá um 60 kr. hækkun á kíló á kjötverði á þessu hausti. Mat þeirra var að til samans væru hækkanir einar saman á áburði, olíu og fjármagnskostnaði slíkar að þeir þyrftu um 100 kr. hækkun eða 27%. Afurðastöðvar hafa hvergi nærri treyst sér til að mæta þeim verðum og eru vissulega í erfiðri stöðu til þess, þær hafa fengið á sig kostnaðarhækkanir, ekki síst kannski fjármagnskostnaðinn og stóraukinn flutningskostnað. Ég hvet hv. þingmenn til að kynna sér og lesa t.d. tvær greinar í nýútkomnu bændablaði, önnur er eftir Grím Atlason, nýráðinn bæjarstjóra í Dalabyggð, sem minnir menn á mikilvægi landbúnaðarins, og hin er eftir ungan bóndason úr Vopnafirði sem spyr stjórnvöld og forustumenn í íslenskum stjórnmálum — Kári Gautason heitir hann — mjög svo réttmætra spurninga um hvaða framtíð stjórnvöld eða stjórnmálamenn ætli íslenskum landbúnaði og hvað bíði ungra bænda sem hafa áhuga á því að hefja búskap.
Spurningarnar hljóta því að vera við þessar aðstæður: Hvað ætla stjórnvöld að gera eða ætla þau kannski ekkert að gera? Á landbúnaðurinn að mæta þessum gríðarmiklu viðbótarerfiðleikum sem nú skella á honum og eru að hluta sértækir eins og ég hef hér útlistað? Minni ég líka á að vegna gengisfalls krónunnar batnar kannski staða ýmissa útflutningsatvinnugreina en landbúnaðarins í raun og veru í hverfandi mæli þar sem hann flytur lítið út af sínum afurðum en verðbólgan, segir þar, heldur betur til sín.
Í lok ágúst var viðtal við hæstv. landbúnaðarráðherra í kjölfar fjölmenns bændafundar í Dölum þar sem hann var spurður út í stöðuna. Hæstv. ráðherra sagðist skilja áhyggjur sauðfjárbænda, hann sagði að ríkisstjórnin mundi væntanlega ræða málið en hann boðaði engar aðgerðir. Nú verður einfaldlega að gera betur. Sauðfjárbændur óttast verulegan flótta úr sinni grein og það er ljóst t.d. að hjá kúabændum og reyndar í fleiri búgreinum innan landbúnaðarins eru gríðarlegir erfiðleikar.
Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra í raun og veru fyrst og fremst hver staðan sé og hvað standi til að gera eða hvort eitthvað standi til að gera, en ég spyr þó sérstaklega: Telur hæstv. landbúnaðarráðherra koma til greina að beita Byggðastofnun í auknum mæli, það eru fá önnur tæki eftir, t.d. með því að hún fái fé ef með þarf til að koma til móts við bændur og afurðastöðvar og veita þeim lán til að ná niður hinum gríðarlega fjármagnskostnaði? Er ríkisstjórnin tilbúin til annarra aðgerða sem lækkað geta framleiðslukostnað, dregið úr hinum gríðarlegu hækkunum á aðföngum og/eða með öðrum hætti komið í stað afurðaverðshækkana sem bændur þyrftu annars að fá (Forseti hringir.) til að geta lifað af búskap sínum?
Hver er staða málsins, hæstv. ráðherra?