135. löggjafarþing — 122. fundur,  11. sept. 2008.

fjarskipti.

523. mál
[18:55]
Hlusta

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég fagna þessari yfirlýsingu hæstv. samgönguráðherra. Með henni er vissulega komið til móts við þær áhyggjur og sjónarmið sem komu upp á vettvangi samgöngunefndar, sérstaklega varðandi það að NMT-kerfinu yrði lokað um áramótin í mesta skammdeginu, ef svo má segja.