135. löggjafarþing — 123. fundur,  12. sept. 2008.

heildarumhverfismat vegna framkvæmda á Bakka.

[10:39]
Hlusta

utanríkisráðherra (Ingibjörg Sólrún Gísladóttir) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég kveinka mér ekkert undan því þótt þessi umræða fari fram og ég lít ekki svo á að það séu neinir kveinstafir af minni hálfu þó að ég bendi á þá augljósu staðreynd hversu mjög þingmaðurinn Valgerður Sverrisdóttir er haldin þráhyggju í þessu máli, að koma hér aftur og aftur, spyrja sömu spurninganna (Gripið fram í.) og fá alltaf sömu svörin. Það er auðvitað þráhyggja þingmannsins. Það hefur verið bent á að það er hægt að finna leiðir til þess að rannsóknir geti áfram farið fram á Þeistareykjum og þurfi ekki endilega að lúta þessu heildstæða mati. Rannsóknarborholurnar þurfa engu að síður að fara í ákveðið umhverfismat. Allar slíkar framkvæmdir eru háðar ákveðnu umhverfismati og þurfa að lúta því þó að þær geti farið fram án þess að heildarmatið allt sé tekið undir.