135. löggjafarþing — 123. fundur,  12. sept. 2008.

staðgöngumæðrun.

[10:48]
Hlusta

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég beini fyrirspurn minni til hæstv. heilbrigðisráðherra. Fyrirspurnin varðar svokallaða staðgöngumæðrun en það er þegar tæknifrjóvgun er framkvæmd á konu sem hyggst ganga með barn fyrir aðra konu og hefur fallist á það fyrir meðgönguna að láta barnið strax af hendi eftir fæðingu.

Staðgöngumæðrun er leyfð í á annan tug landa með mismunandi ströngum skilyrðum en samkvæmt lögum um tæknifrjóvgun er staðgöngumæðrun ekki leyfð hér á Íslandi og fyrir því eru margvíslegar aðstæður. Það eru ekki síst flóknar og áleitnar siðferðilegar spurningar sem vakna við þetta.

Staðgöngumæðrun er eitt þeirra úrræða sem konur sem af einhverjum ástæðum geta ekki eignast börn hafa að grípa til. Sem dæmi má nefna sístækkandi hóp kvenna sem gengið hafa í gegnum erfiðar krabbameinsmeðferðir á unga aldri og hafa með framförum í læknavísindunum blessunarlega lifað af þá meðferð en með þeim afleiðingum að þeim verður ekki barna auðið með hefðbundnum hætti. Þetta er dæmi um svokallaðar síðbúnar afleiðingar sem samtök krabbameinssjúkra barna t.d. hafa fjallað mikið um á síðustu árum á sínum vettvangi.

Fyrir rúmu ári síðan birtist auglýsing í Morgunblaðinu frá pari sem óskaði eftir staðgöngumóður. Þar sem það er ekki leyfilegt hér á landi var ætlunin að framkvæma aðgerðina í útlöndum þar sem það er heimilt og var talsverð umræða um það í þjóðfélaginu í kjölfar þess og mjög skiptar skoðanir.

Síðastliðið vor þegar frumvarp um heimild til tæknifrjóvgunar einhleypra kvenna var til meðferðar í þinginu var þessi möguleiki ræddur og ákveðið að ekki yrði lagt til að breyta þessu á Alþingi þar sem umræða í samfélaginu hefði ekki farið fram. Því vil ég spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort á vegum ráðuneytisins sé hafin eða standi til einhver slík vinna sem mætti verða til þess að hefja umræðu um þetta mikilvæga mál frá öllum hliðum þess. Þá á ég við frá læknisfræðilegum og lagalegum hliðum og ekki síst siðfræðilegu hliðum.