nálgunarbann.
Frú forseti. Mér finnst margt mæla með upptöku austurrísku leiðarinnar í þessum málaflokki eins og margir hér í salnum vita. En ég er hins vegar á því að við þurfum að undirbúa það talsvert betur. Við erum ekki komin til botns í þessu máli í þeim álitamálum sem lúta að austurrísku leiðinni. Þessi hugmynd, austurríska leiðin, hefur t.d. ekki farið til umsagnar á þessu þingi. Ég tel því að við þurfum að vinna þetta aðeins betur og með því að segja það þá er ég ekkert að útiloka að þetta skref verði einhvern tímann tekið. En við þurfum að vanda lagasetninguna. Við þurfum að mæta þeirri gagnrýni sem er uppi varðandi þá leið og þess vegna tel ég þetta skref sem meiri hluti allsherjarnefndar er tilbúinn að taka í nefndaráliti sínu um að það verði sérstaklega könnuð reynslan á fyrirkomulaginu á hinum Norðurlöndunum. Það hefur ekki verið gert og það kom skýrt fram í meðförum nefndarinnar.
Framsögumaður vinstri grænna sagði í umræðunni í gær að við hefðum mjög lítil gögn um þessi mál og það er bara staðreyndin sem við stöndum frammi fyrir þegar við ætlum loksins að taka skrefið. Þá skiptir miklu máli að það sé búið að komast fyrir allan leka hvað þetta varðar.
Í nefndaráliti meiri hlutans segjum við að dómsmálaráðuneytinu beri sérstaklega að kanna reynsluna á Norðurlöndunum. Í öðru lagi að athuga hvernig úrræðin falli að íslensku réttarfari og síðan að leggja afrakstur þeirrar vinnu fyrir nefndina aftur. Þannig að við erum að taka skref fram á við varðandi austurrísku leiðina. Við erum ekki að loka neinu og ég ítreka það enn og aftur eins og ég gerði í umræðunni í gær en á þessum tímapunkti erum við einfaldlega ekki tilbúin að taka þetta skref. Það eina sem við höfum í rauninni fyrir framan okkur er þingmannamál hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur og með fullri virðingu fyrir því máli og því orðalagi sem þar er þá þarf að vinna það betur.