136. löggjafarþing — 2. fundur,  2. okt. 2008.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[19:50]
Horfa

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Samfylkingin, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Geir H. Haarde forsætisráðherra í fyrstu umferð, Ásta Möller, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og Illugi Gunnarsson, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon, 4. þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Katrín Jakobsdóttir, 4. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Atli Gíslason, 7. þingmaður Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra í annarri og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk tala Guðni Ágústsson, 3. þingmaður Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Valgerður Sverrisdóttir, 2. þingmaður Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Birkir J. Jónsson, 6. þingmaður Norðausturkjördæmis.

Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 6. þingmaður Norðvesturkjördæmis, Jón Magnússon, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð en í þriðju umferð Grétar Mar Jónsson, 10. þingmaður Suðurkjördæmis.