stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Góðir Íslendingar. Allir sem leiða hugann að núverandi ástandi í landinu kvíða í reynd morgundeginum og jafnvel næstu vikum. Það þjónar engum tilgangi að fegra málin, þó svo að menn séu forsætisráðherrar eða seðlabankastjórar. Þingmenn sjá ekki fyrir hvert nú stefnir með þjóðarskútuna, ekki frekar en aðrir landsmenn. Við siglum í mjög óvissa stefnu. Í kvöld fellur fyrsti snjórinn í Reykjavík, það er hins vegar blindhríð og óðaísing á þjóðarskútunni. Ef óðaísing hleðst á skip þarf alla áhöfn til verka. Skipstjórinn einn getur ekki bjargað því skipi.
Það er illa komið fyrir okkur sem þjóð, Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin stefna okkur í skipbrot. Nú verða allir að leggja sitt besta fram, gefa góð ráð, ræða saman og leggja línur fyrir betri framtíð en nú blasir við okkur — fólkinu í landinu. Við sem kosin vorum til trúnaðarstarfa á Alþingi berum hér mikla ábyrgð. Við verðum að standa saman að lausnum sem verja og tryggja velferð, afkomu og búsetu fólks.
Oft hef ég lýst vanþóknun minni á ofurlaunaliðinu sem fengið hefur einkavæddu fyrrum ríkisfyrirtækin í leikfangasafnið sitt. Mér finnst sumt af þessu fólki hafa sýnt af sér hroka. Það hefur talið lífsstíl sinn og ofurlaun vera gæði sem því væru færð sem sérstök guðsgjöf. Þau ein væru verðug talin og engum kæmu ofurlaunin við.
Ráðherrar, þingmenn, verkalýðshreyfing og atvinnurekendur verða nú að setjast að sama borði og sýna samstöðu á ögurstundu. Framtíð og heill íslensku þjóðarinnar er í húfi. Krafan er að virkur samráðshópur verði settur til verka, ástandið er svo hættulegt og alvarlegt að við getum ekki lengur látið þrönga eiginhagsmuni eða pólitík stöðva bestu manna ráð.
Góðir tilheyrendur. Þegar litið er til baka vekur margt furðu mína í framsetningu ráðherra og verkum. Hið sama má segja um sumar ákvarðanir Seðlabankans. Ég bý ekki að hagfræði-, viðskipta- eða lögfræðimenntun en menn öðlast þekkingu í skóla lífsins og við alþingismenn eigum að geta leitað álits sérfræðinga um málefni efnahags og fjármála. Enginn ætti að hafa betra aðgengi en forsætisráðherra að öllum þeim upplýsingum sem þörf er á hverju sinni, líka fyrir einu ári síðan. Ég spyr: Hvers vegna sá forsætisráðherra engin hættumerki síðastliðið haust? Fyrir nákvæmlega einu ári stóð Geir Haarde forsætisráðherra í þessum ræðustól og flutti stefnuræðu sína fyrir þingi og þjóð. Þar sagði hann m.a. að núverandi ríkisstjórn hefði verið mynduð til að tryggja kraftmikið efnahagslíf, öfluga velferðarþjónustu, bættan hag heimilanna og aukna samkeppnishæfni atvinnulífsins. Forsætisráðherra sagði að þetta væru raunhæf markmið þó að efnahagsþenslunni færi að ljúka. Við tæki tímabil aukins stöðugleika, íslenska hagkerfið byggi yfir styrk og sveigjanleika sem birtist í öflugu atvinnulífi, nægri atvinnu og vaxandi kaupmætti heimilanna. Þetta var sagt fyrir einu ári síðan.
Góðir landsmenn. Þetta voru skilaboðin sem forsætisráðherra færði þjóð sinni þá. Allt var svo bjart, bara gaman í ríkisstjórninni og engar áhyggjur. Þessi ársgamla stefnuræða forsætisráðherra og aðrar ræður sem fluttar hafa verið af ráðherrum ríkisstjórnarinnar sýna að fyrirhyggja stjórnarliða var engin. Hvergi var hlustað á varnaðarorð, hvorki okkar í Frjálslynda flokknum né annarra. Í staðinn var stundaður ósvífinn blekkingaleikur til að villa um fyrir almenningi í landinu. Nú ári síðar liggja fyrir uppsagnir hundruða starfsmanna. Þegar hafa yfir þúsund manns horfið frá vinnu sinni vegna uppsagna. Atvinnuleysi eykst, verðbólga er í hæstu hæðum, gengi gjaldmiðils okkar er hrunið. Þúsundir heimila í landinu ramba á barmi gjaldþrots. Venjulegir heiðarlegir Íslendingar horfa fram á efnahagslegt hrun með tilheyrandi persónulegum harmleikjum. Og nú loksins bregðast menn við þegar allt er komið í óefni.
Sjálfstæðisflokkur og Samfylking rjúka til um eina helgi þar sem ákveðið er — óvíst á hvaða stöðum — að neyðarlausnin sé að kaupa banka, án þess að heimild Alþingis liggi fyrir, svo að fjármálaþjónusta Íslands kollsigli sig ekki. Væri hægt að svara því nú hvernig menn verðmátu t.d. Glitni? Af hverju gerast hlutirnir hér fyrir lokuðum dyrum? Ef fleiri bankar lenda í sömu vandræðum, á þá að ríkisvæða þá hvern á fætur öðrum? Ætlar ríkið að viðhalda ofurlaunakerfinu í nýja ríkisbankanum?
Það mun taka alþjóðlega fjármálastarfsemi og heimsbúskapinn langan tíma að jafna sig, segir forsætisráðherra nú í ræðu sinni. Á það ekki líka við um íslensk fjármálafyrirtæki? Eða sér ríkisstjórnin allt aðra og betri framtíð hér á landi? Það væri gott að fá svar við því. Hvers vegna var bindiskyldu aflétt á uppgangsþenslutímum bankanna sem buðu 100% íbúðalán í aðför sinni að Íbúðalánasjóði? Var ekki frekar ástæða til að hækka bindiskyldu og stýra lánakapphlaupinu sem var uppi á þeim tíma? Var ofurgleði ráðamanna slík vegna athafnamannanna, sem stefndu í hóp öflugustu fyrirtækja í heimi, að ráðherrar horfðu ekki fram á veginn? Einn bankastjóra Kaupþings upplýsti nýlega í fjölmiðlum að þar hafi menn verið þess vissir fyrir 14–15 mánuðum síðan að fjármálakreppa væri hafin. Af hverju vissi forsætisráðherra ekkert um það síðastliðið haust sem bankamenn vissu þegar hann stóð hér og flutti stefnuræðu sína? Ég spyr, því að mér finnst vanta skýringar.
Þjóðin hefur ekki ástæðu til að gleðjast eins og málum er nú komið, enda er henni þórðargleði ekki eðlislæg. Við leikum ekki á hörpu meðan eignir venjulegs fólks brenna upp á báli verðbólgu eða gengisfellingar, ekki einu sinni þótt því sé lýst af forsætisráðherra að við höfum ærna ástæðu til að gleðjast.
Ríkisstjórnin hefur alls ekki stýrt af festu og öryggi á viðsjárverðum tímum eins og kom fram í ræðu forsætisráðherra í kvöld. Nú berast fréttir hvern dag um uppsagnir starfshópa hjá mörgum fyrirtækjum. Spáð er að gjaldþrotum fyrirtækja fjölgi mjög á þessu ári. Lánafyrirgreiðsla til fyrirtækja er í algjöru frosti. Stýrivextir sliga nú atvinnulífið. Forsætisráðherra sagði í ræðu sinni að ríkisstjórnin vilji að jafnvægi myndist sem allra fyrst í þjóðarbúinu, þannig að verðbólga og vextir lækki. Er ekki komið að því að ríkissjóður verður að taka stórt erlent lán og tryggja gjaldeyrisforðann ef von á verða um styrkingu íslensku krónunnar og aukna trú á getu Seðlabankans sem lánveitanda til þrautavara?
Við í Frjálslynda flokknum viljum vinna að afnámi verðtryggingar íslensku krónunnar. Við krefjumst þess að mannréttindi verði virt, að atvinnufrelsi verði innleitt við fiskveiðar eins og ályktun mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna kveður á um. Okkur er nauðsyn að auka tekjur þjóðfélagsins eins og kostur er við núverandi aðstæður. Með auknum þorskafla upp á 90 þús. tonn gætu tekjur aukist um 50–60 milljarða kr. strax í vetur, með tilheyrandi margfeldisáhrifum. Ekki veitir af eins og skuldabrjálæði sjávarútvegsins, með veð í óveiddum fiski, hefur vaxið og ekki síst nú vegna gengisfalls krónunnar. Sennilega eru skuldir sjávarútvegsins nú eftir gengishrunið undanfarna daga hátt í 500 milljarðar kr. eða fjórum sinnum hærri en árstekjur að óbreyttu.
Veðsetning kvótans er löngu komin út fyrir öll skynsemismörk. Samt er því haldið fram aftur og aftur af hagsmunagæslumönnum kvótans, m.a. þingmönnum ríkisstjórnarinnar, að kvótakerfið sem engum árangri hefur skilað og er mesta rán á þjóðareign sem um getur, sé besta veiðistýringarkerfi í heimi. Þessi áróðurstækni er gamalkunn. Það gildir að halda lyginni fram nógu oft, segja nógu oft það sem ekki er satt, og ef menn hafa menn á launum við að segja ósatt nógu oft fjölgar þeim sem trúa því sem matreitt er.
Það er rétt hjá forsætisráðherra að þjóðin sjálf er mesta auðlindin, eiginleikar hennar hafa skilað okkur í fremstu röð. Þannig var það á Íslandi áður fyrr. Eiginleikar þjóðarinnar voru nýttir því að áður mátti fólk vinna við það sem það sá tækifæri í. Nú er fólki meinuð atvinnusókn bæði til sjávar og sveita. Það þarf engan að undra þó að landsbyggðin sé í vörn og fólki fækki þar þegar slík höft eru lögð á atvinnufrelsið og mannréttindi brotin árum saman. Er það þjóð í fremstu röð sem þolir þessa ríkisstjórn? Sækjum við í öryggisráðið vegna sannleiksástar og virðingar fyrir mannréttindum? Varla er það svo, góðir Íslendingar. Rétturinn til landhelginnar var sóttur með þjóðarvilja og samstöðu eins og forseti okkar, herra Ólafur Ragnar Grímsson, sagði í gær hér á Alþingi. Við þurfum að endurheimta þann rétt þjóðarinnar. Lögin um kvótakerfið eru ólög sem sóa verðmætum, þau ber að afnema.
Góðir Íslendingar. Nú á ögurstundu í sögu þjóðarinnar verðum við að grípa til gjaldeyrisskapandi auðlinda okkar og nýta þær með jafnræði og hagsæld að leiðarljósi. Okkur ber að gera allt sem við getum til að komast út úr núverandi ástandi, samstiga til heilla fyrir íslensku þjóðina. — Góðar stundir.