136. löggjafarþing — 3. fundur,  3. okt. 2008.

efnahagsmál og umræða um fjárlög 2009.

[10:36]
Horfa

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Forseti vill, vegna orða hv. þingmanns og beiðni, vísa til þess að í samræmi við stjórnarskrá hefur ríkisstjórnin lagt fram fjárlagafrumvarp. Það er hér til umræðu og ég tel eðlilegt að gengið verði til þeirrar umræðu og henni lokið þannig að fjárlaganefnd þingsins geti tekið til við að vinna það verk sem henni er ætlað.