fjárlög 2009.
Herra forseti. Hv. þingmaður spyr mig nokkurra spurninga sem hann veit að ég svara ekki vegna þess að ég tel að það sé ekki rétt að fjármálaráðherra gefi út eigin skoðanir á ákvörðunum Seðlabankans um vexti.
Ég get þó svarað einni spurningu hans, þ.e. um áhrif stýrivaxtanna, en um það er engum blöðum að fletta að á öðrum og þriðja ársfjórðungi þessa árs hafa stýrivextir Seðlabankans haft mikil áhrif, miklu, miklu meiri áhrif til þess að draga úr hagvexti en þeir hafa haft mörg missirin þar á undan. (Gripið fram í.) Það er auðvitað matsatriði hvort það var æskilegt eða ekki en í öllu falli hafa þeir haft þessi áhrif og meðan þeir eru svo háir munu þeir draga úr umsvifum atvinnulífsins. Það er hlutverk Seðlabankans að ákveða hverjir þeir eru og hvenær þeir verða lækkaðir. Það er ekki hlutverk ríkisstjórnarinnar, fjármálaráðherrans eða Alþingis að gera það, við höfum hagað þeim hlutum þannig hérna og ég álít að ekki sé rétt að ég tjái mig um þá þætti.