heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði.
Virðulegi forseti. Hér eru greidd atkvæði um breytingartillögu við 5. gr. Við höfum þá afstöðu um alla 5. gr. að hún sé einhver viðamesta grein frumvarpsins og í rauninni sú sem gengur hvað lengst í valdheimildum til einstakrar stofnunar. Í rauninni hefur aldrei verið gengið jafnlangt í sögunni. Við teljum engu að síður að það sé rétt að Fjármálaeftirlitið hafi einhverjar heimildir en við vörum við því að því séu veitt jafnóheftar og -víðtækar valdheimildir til að hlutast til um stjórnarskrárvarin réttindi fólks og hér er kveðið á um. Við framsóknarmenn vorum ekki hafðir með í ráðum um samningu þessa ákvæðis og getum ekki borið ábyrgð á því í framkvæmd. Við munum því sitja hjá við afgreiðslu alls ákvæðisins, einnig þessara breytingartillagna.