staða mála á fjármálamarkaði.
Hæstv. forseti. Það er mjög merkilegur dagur í dag, frjálshyggjan og kommúnisminn eru hvort tveggja lögð til hliðar. Nú er það miðjustefnan, skynsemin, samvinnan, nýjar hugsjónir sem líta roða við dagmál í morgun og menn verða að hugsa öðruvísi og vinna öðruvísi. Ég fagna því að hæstv. forsætisráðherra hefur áttað sig á því að hann verður að eignast nýja vini og í afmælisdagabók Sjálfstæðisflokksins eru gömlu kommúnistarnir komnir þannig að það er fylgst með á þeim bæ. En ég held að þetta sé hárrétt. Auðvitað fór þessi frétt kannski fullsnemma. Ég þakka Seðlabankanum og forsætisráðherra fyrir þetta frumkvæði og ég trúi því að Rússar muni semja við okkur, ég trúi því líka að hún muni opna fleiri dyr, þessi frétt, og það sýnir sig eins og ég sagði áðan.
Ég vil enn fremur í lok ræðu minnar hvetja hæstv. forsætisráðherra til að taka handaflið líka upp við að lækka stýrivextina strax í þessari viku. Það mun skapa nýja bjartsýni á Íslandi.