136. löggjafarþing — 10. fundur,  9. okt. 2008.

aukinn þorskafli á fiskveiðiárinu 2008--2009.

11. mál
[14:17]
Horfa

Þuríður Backman (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að koma í þetta andsvar. Ég sagði í upphafi ræðu minnar að ég væri ekki dómbær á hvort þessi 90.000 tonn væru innan þeirra marka sem við teldum ásættanleg eða óhætt að fara í. Ég treysti aftur á móti langri og mikilli reynslu hv. þingmanns. Ég hef heyrt ákall sjómanna og fullyrðingar þeirra um ástand fiskstofna hringinn í kringum landið. Ég hef líka séð, þótt ekki væri nema í mínu eigin kjördæmi, hvernig byggðirnar eru að hrynja og veit því að breyta verður bæði fiskveiðikerfinu og hlusta á sjómenn þegar lagt er á ráðin um hámark aflaheimilda.

Auðvitað eigum við að horfa á þessa heild út frá sjálfbærri þróun. Bæði að ganga ekki á útsæðið í hafinu, ganga ekki of langt og útfæra sjálfbæra þróun í byggðum landsins. Það er ekki sjálfbær þróun að þurrka upp búsetu úti um land og sópa íbúunum á suðvesturhornið. Við lifum ekki af því að versla með bréf fram og til baka. Við lifum ekki á þessu landi nema að framleiða og við eigum auðæfi. Auðæfin eru í hafinu og í landbúnaði sem við höfum ekki nýtt sem skyldi og auðæfin liggja í orkugjöfum landsins sem við verðum að gæta að eins og gulleggi til framtíðar en ekki hrifsa til okkar í dag og eyða. Það er ekki góð fjárfesting.