136. löggjafarþing — 12. fundur,  14. okt. 2008.

breytt stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

6. mál
[15:57]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það virðist koma illa við hv. þm. Björn Val Gíslason að maður skuli gagnrýna Vinstri græna. Á síðasta hausti lögðu þeir til að veiðileyfagjald yrði lagt af. Í frumvarpinu sem þeir fluttu fyrir einu ári segir að auðlindir séu sameign þjóðarinnar, hann lagði aðaláherslu á það. Þær eru það í núverandi fiskveiðistjórnarlögum en það er verið að braska með nýtingarréttinn eins og ég benti á áðan og um það nýst málið.

Maður var dálítið hissa þegar Vinstri grænir lögðu til að veiðileyfagjald yrði fellt af útgerðinni fyrir ári — þegar verið var að skera niður kvótann um 33%. Ég gat ekki betur séð en þá væru Vinstri grænir beinlínis að þjónka sægreifunum. Við í Frjálslynda flokknum höfum alltaf verið helstu baráttumenn gegn núverandi fiskveiðistjórnarkerfi og flokkurinn var beinlínis stofnaður gegn því óréttláta kerfi.

Ekki hafa allir í Vinstri grænum verið gallharðir á móti þessu kerfi. Til eru ræður í þinginu sem menn hefðu hollt af að skoða. Hv. þm. Björn Valur Gíslason ætti að skoða ræður fyrrverandi formanns sjávarútvegsnefndar sem nú er formaður í samtökum Vinstri grænna, en stundum hefur manni fundist eins og þeir séu beinlínis að þjónka sægreifunum.