breytt stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Jón Magnússon kom inn á mjög mikilvægt atriði í sinni ágætu ræðu hér áðan varðandi það fiskveiðistjórnarkerfi sem hér er við lýði, þ.e. ég og hann og þeir sem hafa verið að snúast gegn þessu og höfum verið andsnúin þessu kerfi erum þar með ekki að segja að við viljum óheftan aðgang að sjávarauðlindunum. Ég tel það kerfi sem nú er í gildi mjög óréttlátt, rétt eins og hv. þingmaður nefndi hér áðan, rétt eins og mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur bent á er sú leið sem við erum að fara núna óréttlát. Það þýðir hins vegar ekki að við þurfum ekki að takmarka aðgang að auðlindinni með einhverjum hætti. Því verður að finna aðrar leiðir til að skipta þessu með sanngjörnum hætti á milli þeirra sem stunda þessa grein.
Þar er ekki eingöngu um að ræða sjómenn eða útgerðarmenn heldur ekki síður fiskverkafólk og sveitarfélög, þ.e. þá sem hafa í gegnum tíðina, í gegnum árin og aldirnar jafnvel haft afkomu sína af sjávarútvegi með einhverjum hætti. Við þurfum að leita leiða til að skipta auðlindinni þannig að við náum að uppfylla þær kröfur og ákvæði sem nú þegar felast í lögum um sjávarútveg, efla fiskstofnana, efla atvinnu og efla byggð í landinu. Þá fyrst erum við farin að tala um að geta náð jöfnuði um aðgang að auðlindinni.