136. löggjafarþing — 12. fundur,  14. okt. 2008.

breytt stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

6. mál
[16:29]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Fl):

Hæstv. forseti. Þegar við veltum fyrir okkur áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, þá spyr ég enn og aftur: Af hverju þurfti mannréttindanefnd að koma til sögunnar? Af hverju þurfti að koma til álit frá mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna um að við mismunum ekki þegnum í landi okkar? Ég hef aldrei skilið þetta né áttað mig á því að þörf væri á því. En það er náttúrlega niðurstaðan eftir 25 ár með þetta óheilbrigða kerfi, óréttláta, ósanngjarna og vitlausa kerfi, því fylgir mikil spilling og misnotkun á ýmsum hlutum og ójöfnuður og óréttlæti. Með því er atvinnufrelsi og atvinnuréttindi brotin á fólki. Það eru leiguliðar sem fylgja þessu kerfi, lénsherrar og sægreifar sem pína leiguliðana statt og stöðugt með því að leigja fiskinn á dýru verði, kvótann.

Íslenskir ráðherrar hafa verið að þvælast út um allan heim að boða mannréttindi, tala um mannréttindabrot við ráðamenn í öðrum löndum, Kína og víðar, og alltaf koma þeir fram eins og þeir séu hvítþvegnir englar af öllu en þegar þeir koma heim til sín þá standa þeir á bak við mannréttindabrot á Íslandi. Það er ótrúlegt hvað þeir komast langt og lengi upp með þessa uppákomu, að geta gert þetta. Það er líka ótrúlegt að flokkar og fólk í flokkum skuli ekki veita ráðamönnum sínum, þingmönnum og forustumönnum sínum meira tiltal en raun ber vitni, að þeir skuli ekki hreinlega setja svona forustumenn af sem bakka upp og styðja mannréttindabrot áfram. Það verður auðvitað hver að svara fyrir sig en sumir flokkar virðast vera verri í þessum málum en aðrir og þá á ég sérstaklega við stjórnarflokkana. Sjálfstæðismenn hafa ekki vílað þetta fyrir sér en það hefur ein og ein sál í Samfylkingunni haft eitthvert samviskubit yfir þessu en þeir láta það samt yfir sig ganga til að halda í stólana sína. Þess vegna eru þeir tilbúnir að leyfa íhaldinu að fara með sig í þessum málum eins og ég veit ekki hvað er rétt að nota sem samlíkingu við þetta — þeir virðast ganga yfir þá á skítugum skónum, það er ekki hægt að orða það neitt öðruvísi.

Ástand fiskstofnanna er einn þáttur í þessu. Af hverju er staða fiskstofnanna svona léleg? Af hverju eru menn að verja kerfi sem skilar okkur ekkert fram á við? Það væri forvitnilegt að fá svar við því en það fæst náttúrlega ekki því eins og er þá eru fjórir menn í salnum og það eru þrír úr Frjálslynda flokknum og einn úr Sjálfstæðisflokknum. (KÓ: Hver er það?) Ég þarf ekki að nafngreina hv. þm. Kjartan Ólafsson en hann er hér enn þá.

Það er auðvitað sorglegt til þess að vita að menn í stjórnarflokkunum sjái ekki sóma sinn í því að hætta þessum mannréttindabrotum og taka upp betri siði. Menn eiga að skammast sín fyrir að vera að kenna öðrum þjóðum hvernig eigi að virða mannréttindi en gera það svo ekki heima hjá sér.

Þegar við í Frjálslynda flokknum tölum um að við viljum fara í sóknardagakerfi til að koma í veg fyrir brottkast og marga aðra ókosti við núverandi fiskveiðistjórnarkerfi þá tekur maður eftir því að hv. þm. Björn Valur Gíslason er ekki að tala um að fara úr kvótakerfi, hann er að tala um að stokka upp og breyta úthlutun á veiðiheimildum. Ég hef ekki heyrt hann minnast á að breyta þyrfti kerfinu á þann hátt að taka upp sóknardaga. Ég ætla ekki að munnhöggvast meira við hann. Ég hef frekar litið á hann sem samherja í þessum málum, að hann vilji gera breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu og vilji virða mannréttindi og ég þakka honum fyrir það.