136. löggjafarþing — 12. fundur,  14. okt. 2008.

breytt stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

6. mál
[16:36]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Við erum að ræða mannréttindamál og við erum að ræða fiskveiðistjórnarkerfi sem er ósanngjarnt og óeðlilegt, óheilbrigt og engin skynsemi að hafa það. Það er hér vegna eignarhalds á veiðiheimildum, út af peningum, þetta hefur snúist um peninga, þetta hefur snúist um verðmæti á óveiddum fiski sem menn hafa verið að kaupa, leigja eða selja. Staðan er sú að nú á íslenskur sjávarútvegur ekki möguleika á að borga skuldir sínar. Við erum að ræða þingsályktunartillögu um mannréttindamál sem snúast um það að menn séu jafnir gagnvart sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.

Þegar ég er að tala um sóknardaga eða aflamark þá er það út af því að það hefur hvergi komið fram. Sumir hafa verið að tala um að þeir vildu breyta en þeir vilja ekki breyta aflamarkinu. Þeir eru að tala um að það verði að endurúthluta aflamarki. Það er ekki verið að tala um að gera grundvallarbreytingar með því að fara í sóknardagakerfið eða frjálsa sókn á ákveðnum veiðisvæðum og ákveðnum tegundum báta og annað í þeim dúr eins og við í Frjálslynda flokknum höfum boðað, frjálsar handfæraveiðar á minni bátum. Við höfum boðað að taka tegundir út úr kvóta og við höfum boðað ýmsar róttækar breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu og síðast en ekki síst að fara yfir í sóknarmarkskerfi en með því að vera sóknarmarkskerfi kæmum við í veg fyrir brottkast og ýmsa aðra hluti sem fylgja svokölluðu aflamarkskerfi og númer eitt, tvö og þrjú, að tryggja það að menn standi jafnfætis, atvinnufrelsi manna sé jafn réttur allra.