breytt stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Virðulegi forseti. Ég tel að komið sé að lokum þessarar umræðu og það er athyglisvert að verða vitni að því hverjir töldu ekki ástæðu til að taka þátt í henni. Ég leyfi mér að benda á að þegar þetta mál var rætt á síðasta þingi gerði hv. þm. Karl V. Matthíasson sig mjög gildandi í umræðunni, kom ítrekað í ræðustól og hélt því fram og sagði, og þessu má fletta upp í þingræðum, að að sjálfsögðu mundu íslensk stjórnvöld fara að niðurstöðu mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Að sjálfsögðu yrðu gerðar nauðsynlegar breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu í samræmi við álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Ég átti stundum bágt með að átta mig á hvert sá hv. þingmaður, sem ég hér nafngreindi, ætlaði að fara yfir því að við flutningsmenn þessarar þingsályktunartillögu skyldum leggja fram slíka tillögu miðað við að það væri ljóst að þarna yrði gerð bragarbót á.
Ég hef nú í umræðunni gert grein fyrir því hver niðurstaða sjávarútvegsráðuneytisins var, hvert svar ríkisstjórnarinnar var við áliti mannréttindanefndarinnar. Svarið var einfaldlega: Við ætlum að halda áfram óbreyttu kerfi. Við getum hlustað á það sem þið hafið verið að segja. Við áttum okkur á því að þið segið að það sé verið að brjóta mannréttindi á íslenskum þegnum en samt sem áður ætlum við að halda því áfram.
Þetta var inntakið sem fólst í svari sjávarútvegsráðuneytisins og þar með íslensku ríkisstjórnarinnar til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Það er þarna sem málið varðar þá þingsályktunartillögu sem við erum að fjalla um. Við sem unnum mannréttindum og gerum kröfu til þess að íslenska ríkið virði mannréttindi borgara sinna við sættum okkur ekki við þetta og ég ítreka það sem ég sagði í fyrstu ræðu minni um þetta mál: Mannréttindi eru algild. Lýðræðisríki má ekki brjóta mannréttindi á þegnum sínum, má ekki brjóta mannréttindi á borgurum sínum.
Þess vegna og þar sem nú liggur fyrir að andstætt því sem hv. þingmaður Karl V. Matthíasson vildi halda fram þá hefur ríkisstjórnin sýnt það að hún ætlar sér að halda áfram mannréttindabrotum, hún ætlar að halda áfram að brjóta rétt á því fólki sem vill stunda fiskveiðar með eðlilegum hætti. Hún ætlar að viðhalda óréttlátu gjafafkvótakerfi þar sem sumir fá gefins en aðrir þurfa að kaupa dýrum dómum. Þar sem þetta liggur fyrir og afstaða ríkisstjórnarinnar er alveg skýr þá er mjög mikilvægt að Alþingi Íslendinga tjái sig um málið með atkvæðagreiðslu þannig að þingmenn greiði persónulega atkvæði um það hvort þeir vilji fylgja og hlíta mannréttindum eða hvort þeir ætli að halda áfram að styðja ríkisstjórnina í því að brjóta mannréttindi.
Ég vísaði til ummæla hæstv. utanríkisráðherra í fyrra þegar hún gaf skýrslu um utanríkismál þar sem hún lagði þunga áherslu á að mannréttindi yrðu virt. Ég gat ekki skilið orð hennar með öðrum hætti en þeim að hún væri mér sammála um að mannréttindi væru algild og að þau bæri að virða hvar sem væri. Þess vegna finnst mér með ólíkindum að það skuli koma fram þetta álit frá sjávarútvegsráðuneytinu sem svar til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Það er ekki nema einn aðili sem getur hnekkt því og breytt þessu og það er Alþingi Íslendinga. Þess vegna flytjum við þá þingsályktunartillögu sem hér um ræðir, til að knýja á um að ríkisstjórn Íslands láti af löglausri aðför gegn borgurum landsins, að mannréttindi séu virt gagnvart öllum borgurum þessa lands.