136. löggjafarþing — 12. fundur,  14. okt. 2008.

breytt stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

6. mál
[16:48]
Horfa

Kristrún Heimisdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Þar sem ég er í hópi þeirra Íslendinga sem hefur frá upphafi efast um réttlæti kvótakerfisins hefur mér þótt miður hvernig talsmenn Frjálslynda flokksins hafa kosið, frá því að niðurstaða mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna lá fyrir, að tala niður þann árangur sem þeir sem ákváðu að fara með þetta mál fyrir nefndina náðu með málafylgju sinni og niðurstöðu nefndarinnar.

Ég verð að segja að mér þykir lýsing hv. þingmanns, sem talaði á undan mér, á svari íslenskra stjórnvalda draga ákaflega úr þeim árangri sem þar hefur náðst. (Gripið fram í.) — Hv. þingmaður hefur vissulega nafn, Jón Magnússon. Það sem ég vildi leggja til málsins er að svar íslensku nefndarinnar og niðurstaða mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna felur í sér verulegan árangur fyrir þá sem telja að breyta eigi kvótakerfinu.

Merkasti árangurinn að mínu mati í niðurstöðu mannréttindanefndarinnar er sú staðreynd að í henni felst túlkun á jafnræðisreglu sáttmála Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem ég tel að íslenskir dómstólar geti ekki litið fram hjá í túlkun sinni á íslensku stjórnarskránni og þar með á því hvernig kvótakerfið vegur gegn stjórnarskránni. Það er kjarnaatriði að mínu viti vegna þess að það sem Hæstiréttur hefur notað til að hnekkja ákveðnum þáttum kvótakerfisins hingað til á síðastliðnum árum hefur einmitt verið jafnræðisregla stjórnarskrárinnar. Það er mjög mikilvægur árangur sem mér finnst að þeir sem tala heiðarlega og af fullum heilindum fyrir breytingum á kvótakerfinu ættu að halda fram í stað þess að tala þann árangur sífellt niður og slá ryki í augu þeirra sem ef til vill mundu fara fyrir íslenska dómstóla og byggja á því að túlkun jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar ætti nú að taka mið af þeirri túlkun sem mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna leggur í samninginn um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi.

Ég minni á að þegar hv. Alþingi Íslendinga breytti mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar síðast í kringum afmæli lýðveldisins 1994 var vísað til þessa sáttmála Sameinuðu þjóðanna sem lögskýringargagns. Þarna eru því full efni til þess að ná árangri fyrir dómstólum og ég skora á alla þá sem tala heiðarlega um þessi mál að halda þessu frammi, það skiptir verulegu máli.

Í öðru lagi hefur mér þótt sá málflutningur að láta sem enginn árangur hafi náðst fyrir það fólk í landinu sem telur að breyta eigi kvótakerfinu satt að segja mjög vafasamur. Ég bendi á að það ferli sem málið er í er algjörlega sambærilegt við öll þau ferli sem farið hafa fram hér á Íslandi í tengslum við niðurstöður og málsmeðferð Mannréttindadómstóls Evrópu. Sá dómstóll hefur breytt mjög miklu í lögum á Íslandi á síðastliðnum áratugum og þá meina ég í grundvallaratriðum. Ég vísa til þess þegar niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu varð til þess að breyta skipan dómskerfisins í heild í landinu, aðskilnaði umboðsvalds og dómsvalds í héraði, og fleiri atriða sem ég veit að hv. þingmenn þekkja vel til.

Málið sem kemur frá mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna er í sams konar ferli. Það er alveg eðlilegt að íslensk stjórnvöld færi þau rök sem þau gera í svari sínu til mannréttindanefndarinnar, að lýsa því hvernig dómaframkvæmd hefur verið á Íslandi, hvernig Hæstiréttur Íslands hefur dæmt í þessum málum o.s.frv., það er ekkert óeðlilegt við það. Ég veit og hef heimildir fyrir því að svari ríkisstjórnarinnar til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna hefur verið tekið mjög vel og að nefndin lítur svo á að íslensk stjórnvöld hafi brugðist mjög vel við málinu, algjörlega í samræmi við þá stefnu sem utanríkisráðherra Íslands og ríkisstjórnin hafa mótað í afstöðu til mannréttinda á alþjóðavettvangi. Með öðrum orðum lítur mannréttindanefndin svo á að íslensk stjórnvöld séu að fullu í samstarfi við nefndina um að greiða úr málinu. Svarið gefur tilefni til þess að ætla að það samstarf sem heitið hefur verið í sérstakri nefnd um málið muni skila árangri fyrir alla þá sem vilja sjá breytingar á kerfinu.

Þess vegna vil ég nota tækifærið, af því að ég hef ekki mörg tækifæri til að tala úr þessum stól, að skora á þá hv. þingmenn sem hér eru í salnum, talsmenn Frjálslynda flokksins, sem ég veit að hafa í hjarta sér þá ósk að breyta þessu kerfi, að þeir fari nú að tala upp þann árangur sem náðst hefur. Að þeir fari nú að vekja athygli samfélagsins og borgaranna í landinu á því að þeir geti kannski farið með mál fyrir dómstóla með öðrum hætti en áður hefur verið, að það sé raunverulega svo að margir vilji ná árangri í þeirri nefnd sem stjórnvöld munu koma á fót. Ég held að það væri mun líklegra til árangurs fyrir málstaðinn en sá málflutningur sem mér hefur iðulega þótt koma fram, að tala alla þessa þætti niður.

Ég held að menn horfi af fullum heilindum til þess að breyta þessu kerfi og bið menn um að bíða árangurs af því.