136. löggjafarþing — 12. fundur,  14. okt. 2008.

breytt stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

6. mál
[17:03]
Horfa

Flm. (Jón Magnússon) (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég gat ekki heyrt annað en hv. þm. Kristrún Heimisdóttir segði það berum orðum að hún teldi að fara ætti eftir niðurstöðu mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Ég gat ekki skilið orð hennar með öðrum hætti. Samkvæmt því styður hún þá tillögu sem við leggjum hér fram.

Flokksbróðir hennar, hv. þm. Karl V. Matthíasson, lýsti því yfir að hann gæti efnislega fallist á þau sjónarmið sem fram kæmu í tillögu okkar en taldi ljóst að ríkisstjórnin ætlaði að gera bragarbót í því efni og taldi að það mundi verða gert mjög fljótlega. Það hefur hins vegar ekki gerst. Og það að segja að ekki standi til að greiða skaðabætur, eins og kveðið er á um í niðurstöðum mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, þýðir að ekki á að fara eftir niðurstöðunni. Ég er hins vegar sammála hv. þm. Kristrúnu Heimisdóttur um það að við erum komin með mjög mikilvægt lögskýringargagn í hendur varðandi þetta atriði og getum fært íslenskum dómstólum það í hendur svo að þeir geti kveðið upp dóma í samræmi við mannréttindi.

Það er sorgleg staðreynd að íslenskir dómstólar hafa iðulega dæmt með þeim hætti að fólk hefur þurft að leita til mannréttindadómstóla til að ná fram rétti sínum. Því miður hefur það iðulega verið þannig. Það þyrfti að vera öðruvísi. Sjálfsagt láta einhverjir á það reyna fyrir íslenskum dómstólum hvort sú niðurstaða sem hv. þm. Kristrún Heimisdóttir heldur fram verði raunveruleikinn. Ég er hins vegar ekki jafnbjartsýnn og hún en ítreka að ég get ekki séð að efnislegur ágreiningur sé á milli okkar. Þetta er einfaldlega spurning um túlkun á svarinu. Mín niðurstaða er þessi: Ríkisstjórnin hefur sagt að hún ætli ekki að fara eftir þessu en gefur upp boltann um að einhvern tíma í framtíðinni geti það gerst.