breytt stjórn fiskveiða í samræmi við úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Virðulegi forseti. Það er árás að segja að sjávarútvegurinn eigi ekki fyrir skuldum. Það er árás. Það er mjög alvarleg árás á sjávarútveginn. Kannski er eitt af því sem þarf að skoða í endurskoðun fiskveiðistefnunnar heimildirnar til mats, til veðbanda á óveiddan fisk. Það hefur viðgengist árum saman. Er það útgerðinni að kenna eða var það kannski hluti af glimmerinu í augum bankamannanna, ráðgjafa þeirra, lögfræðinga þeirra, sérfræðinga þeirra? Var það glýjan til að auka fjármagnið í veltunni í þessum geggjaða hamagangi? Það er ekki útgerðinni að kenna.
Það skiptir miklu máli að við kunnum að meta hverjir eru vinir okkar því að í málum sem þessum gildir ákveðin viðmiðun sem er út frá afstöðu ýmissa þjóða hvort sem þær eru í Afríku eða annars staðar. Það er ekki lagakrókurinn sem gildir þarna. Það er matið.
Það er líka rangt að segja að kerfið byggist á því að sumir fái frítt en aðrir þurfi að kaupa. Það er bara rangt. Það er misskilningur hjá hv. þm. Jóni Magnússyni, bara misskilningur, útúrsnúningur.