136. löggjafarþing — 15. fundur, 28. okt. 2008.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Samfylkingarinnar, Lúðvíki Bergvinssyni, um að Björgvin G. Sigurðsson, 2. þm. Suðurk., sé á förum til útlanda í opinberum erindagjörðum og geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Fyrsti varamaður Samfylkingarinnar í kjördæminu, Róbert Marshall, aðstoðarmaður ráðherra, tók sæti á Alþingi frá og með deginum í gær. Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.