136. löggjafarþing — 15. fundur,  28. okt. 2008.

málefni sveitarfélaga.

[13:41]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Herra forseti. Okkur er öllum ljóst að það eru grafalvarlegir tímar í íslensku samfélagi í dag og áhyggjur margra eru miklar eins og gefur að skilja. Eitt er það efni sem ég vil taka upp við hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í þessu samhengi og það er staða sveitarfélaganna.

Það er ljóst að mörg sveitarfélög og vafalítið öll standa frammi fyrir miklum erfiðleikum á næstu vikum og mánuðum í vinnu sinni við fjárhagsáætlunargerð fyrir næsta ár, í vinnu við að koma til móts við vaxandi þarfir íbúa sinna, almennings, m.a. í formi ráðgjafar, fjárhagsaðstoðar og fleiri slíkra hluta. Í fjárlagafrumvarpi sem lagt hefur verið fram í nafni ríkisstjórnarinnar er m.a. gert ráð fyrir því að lögum um tekjustofna sveitarfélaga verði breytt og fasteignaskattur lækkaður, skattur sem í dag er 1,32% verði lækkaður í 0,88%. Þessi ráðstöfun ein og sér mun að öllum líkindum þýða tekjutap fyrir sveitarfélögin á bilinu 700–800 millj. kr. Ekki er gert ráð fyrir sérstöku viðbótarframlagi í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga upp á 1.400 millj. kr. og það er að sjálfsögðu viðbúið að mikið fall verði í útsvarstekjum sveitarfélaga vegna þess efnahagsástands sem við stöndum frammi fyrir. Þar að auki munu almennu framlögin í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga að líkindum lækka um a.m.k. 2 milljarða kr. vegna tekjutaps ríkisins. Í gildi er samstarfssáttmáli ríkis og sveitarfélaga og þar segir:

„Komi fram tillögur um breytingar á verkaskiptingu eða fjármálalegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga og/eða tekjustofnum sveitarfélaga skulu þær teknar til umfjöllunar á árlegum samráðsfundi fulltrúa stjórnar sambandsins og ráðherra.“

Ég spyr hæstv. samgönguráðherra: Hefur ríkisstjórnin rætt vanda sveitarfélaganna og til hvaða aðgerða hyggst hún grípa? Hvað hyggst ráðherra með 1.400 millj. kr. viðbótarframlagið í jöfnunarsjóð? Var rætt við sveitarfélögin um þær forsendur sem fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir um að lækka fasteignaskattinn?