136. löggjafarþing — 15. fundur,  28. okt. 2008.

virkjunarframkvæmdir.

[13:59]
Horfa

iðnaðarráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Herra forseti. Að því er varðar síðasta hluta máls hv. þingmanns er það svo, eins og ég sagði fyrr á þessum degi úr þessum stóli, að sérfræðingar sem ríkisstjórnin hefur hlustað á, hér innan lands og líka erlendir sérfræðingar, hafa talið nauðsynlegt að grípa til aðgerða til þess að reyna að stuðla að því að styrkja gengið þegar gjaldeyrismarkaður hefst aftur. Hv. þingmaður, sem er snjall lögmaður, getur síðan ályktað og gagnályktað eins og hann vill út frá orðum mínum en þannig vill til að ég lít ekki svo á að ég sé staddur hér við gagnspurningar í réttarhaldi.

Að því er varðar Búðarháls vildi ég gjarnan að þær framkvæmdir hæfust. Öll leyfi liggja fyrir varðandi sjálfa Búðarhálsvirkjun, langt er síðan þau voru öll til reiðu. Það var í tíð hv. þm. Valgerðar Sverrisdóttur og ég held að allur þingheimur hafi greitt því atkvæði á sínum tíma.

Hvað varðar ýmislegt annað sem Landsvirkjun hefur komið fram með segi ég einfaldlega: Ekki hefur verið rætt við iðnaðarráðherra og ekki verið óskað eftir neinni flýtimeðferð (Forseti hringir.) vegna þess og ekki stendur til að veita neinn afslátt frá þeim reglum sem við höfum sett okkur um þetta mál.