áfengisauglýsingar og viðbrögð við dómi Hæstaréttar.
Virðulegi forseti. Ég vek athygli á dómi Hæstaréttar frá 23. október í síðustu viku um bann við áfengisauglýsingum, rétt eins og fram kom í fyrirspurn frá hv. 2. þm. Norðvest. Mig langar að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. dómsmálaráðherra hvernig hann hyggst bregðast við dómnum varðandi framfylgd þeirra laga sem í gildi eru í ljósi dómsins.
Það liggur fyrir og kom fram í dómi frá einum dómaranum að til varnar hinum ákærða hafi verið lagðar fram fjórar möppur frá Fjölmiðlavaktinni og bent á 999 sambærileg brot á áfengislöggjöfinni á aðeins þrettán mánaða tímabili frá 1. maí 2005 til 1. júní 2006. Dómurinn hlýtur að þýða að yfirvöld geta ekki lengur haft það umburðarlyndi gagnvart áfengisauglýsingum sem greinilega hefur verið hjá mörgum, svo sem þeim embættum sem eiga að bregðast við þegar grunur leikur á að brotið sé á þessari löggjöf.
Á heimasíðu foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum er nefnt sem dæmi um meint brot á þessari löggjöf að áfengisauglýsingar hafi stundum birst á heimasíðum barna. Áfengisauglýsingar frá Agli Skallagrímssyni voru settar upp í strætóskýlum síðastliðið vor og þeim var sérstaklega beint að börnum og unglingum. Ríkisútvarpið lagði sitt af mörkum með því að birta áfengisauglýsingu að lokinni útsendingu frá Bessastöðum þar sem verið var að heiðra handknattleikslandslið þjóðarinnar.
Mér finnst, virðulegi forseti, vera kominn tími til að hið opinbera beiti sér fyrir annarri og betri stefnu og minna umburðarlyndi gagnvart áfengisauglýsingum en verið hefur í gildi.