136. löggjafarþing — 15. fundur,  28. okt. 2008.

hreyfiseðlar í heilbrigðiskerfinu.

8. mál
[15:08]
Horfa

Ásta Möller (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi niðurgreiðslur á engan veginn að útiloka þær. Oft finnst mér skorta ákveðin hlutverk í kringum hina stóru og virku sjúkrasjóði sem eru í landinu, að stuðningi sé beint til fólks með skilvirkari hætti. Það er eitthvað sem mætti skoða enn betur. Síðan eru margir sem eru með þá sjúkdóma sem ég nefndi í ræðu minni áðan, fólk sem jafnvel er öryrkjar og þarf á endurhæfingu að halda. Það þarf þá jafnvel að fara í gegnum ákveðið ferli til þess að ná fyrri heilsu eða bæta heilsuna, þar inni er m.a. hreyfing.

Ekki alls fyrir löngu ræddi ég við sjúkraþjálfara sem vann við að hjálpa ungum konum sem þjáðust af offitu og það var alveg ljóst að sjálfsmynd þeirra var mjög skert. Þær voru öryrkjar og þurftu verulega á stuðningi að halda, fjárhagslegum stuðningi, til þess að koma sér í gegnum meðferðina til að geta náð heilsu á ný. Það strandaði á peningalegu hliðinni, þær gátu ekki haldið áfram að byggja sig upp með þessum hætti. Aðalatriðið er útfæra hugmyndina með skynsamlegum hætti, að meðferð skili árangri og sé beint að ákveðnum hópum sem þurfa sérstaklega á henni að halda.