136. löggjafarþing — 17. fundur,  30. okt. 2008.

skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

[12:07]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Ég var að velta því fyrir mér hvort gæti verið að hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson væri nýkominn frá tunglinu. Hann predikaði í mikilli eldmessu áframhald þeirrar stefnu sem hefur keyrt okkur út í fenið. Ég get að vísu tekið undir sitthvað í málflutningi hans þegar hann segir að nú eigi að skera óþarfann og fituna burt. Ætlar hann að styðja tillögur sem fram munu koma frá þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um að horfið verði frá áformum um að setja á fót nýtt hernaðarmálaráðuneyti eða hernaðarmálastofnun? Ætlar hann að styðja okkur í því?

Hæstv. forseti. Það er ljótt að ljúga að fólki og það er ljótt að ljúga að heilum þjóðum. Málflutningur ríkisstjórnarinnar og framkoma gagnvart íslensku þjóðinni einkennist ekki bara af því hve mótsagnakenndur hann er heldur hve ósannur hann er. Íslendingum er ekki sagt satt og rétt frá. Okkur var sagt, m.a. í efnahags- og skattanefnd þingsins, að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði ekki sett nein skilyrði fyrir hugsanlegum lánveitingum til Íslands. Fáeinir klukkutímar liðu þar til skýrt var frá því að ákveðið hefði verið að hækka stýrivexti um 50% og fara með þá upp í 18%. Þá hófust í fyrsta lagi mótsagnakenndar yfirlýsingar þar sem annars vegar var fullyrt að þetta væri samkvæmt skilyrðum og skipunum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Í annan stað að Seðlabankinn hefði tekið ákvarðanirnar og í þriðja lagi að þetta væri á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Hvað af þessu er rétt? Eitt er víst að í Seðlabankanum velkjast menn ekki í vafa um hvað rétt er. Eins og hefur komið fram í umræðunni hefur Seðlabankinn sent frá sér athugasemd í dag þar sem segir m.a., með leyfi forseta:

„Eins og kunnugt er hefur verið litið svo á að samningsgerð (Letter of Intent) á milli ríkisstjórnar Íslands og sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sé enn trúnaðarmál. 19. tl. samningssgerðarinnar er þó eðli málsins samkvæmt ekki lengur trúnaðarmál.

Ráðherrar úr ríkisstjórn hafa undrast vaxtahækkun í 18% og hafa jafnframt sagt að ekkert ákvæði um slíka gjörð sé í samningsgerðinni. Í samningsgerðinni segir í 19. tl.:“ — Á enskri tungu, með leyfi forseta: „To raise the policy interest rate to 18 percent.“

Þetta eru skilmálar. Þetta eru skilmálar sem okkur var sagt að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði ekki sett. Með öðrum orðum, fulltrúar ríkisstjórnarinnar lugu þessu að þinginu og lugu þessu að þjóðinni. Ég segi í framhaldi af þessu: Burt með þetta pukur. Farið að segja þjóðinni rétt til. Hverju öðru í þessu samkomulagi sem þið hafið gert við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hafið þið leynt Íslendinga? Ég krefst þess fyrir hönd þingsins að ríkisstjórnin setji þennan samning á borðið. Þetta er ekkert einsdæmi. Hið sama eiga menn nú við að stríða gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Ungverjalandi og Úkraínu. Einnig þar neita stjórnvöld sem sett hafa sig undir hælinn á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að upplýsa þing og þjóðir sínar.

Síðan er hvernig ákvarðanirnar koma við heimilin í landinu, við fyrirtækin í landinu og við þjóðina. Okkur er sagt að vextirnir séu færðir upp til að slá á fjármagnsflutninga einkum út úr landinu og stuðla að því að hjól gjaldeyrisviðskipta geti farið að snúast. Þegar þessi ráðstöfun er gagnrýnd á þeirri forsendu að hún muni setja hengingaról á heimilin og fyrirtækin í landinu, þá segir fulltrúi ríkisstjórnarinnar og ráðherra: Þetta mun vara í mjög skamman tíma. Hvers konar ruglríkisstjórn er þetta? Á sama tíma og hún segist vera að slá á óvissu manna sem eiga fjármuni inni í íslenska fjármálakerfinu og segja þeim að nú sé ekki tími til að fara með þessa fjármuni út lýsir hún því yfir að þetta muni standa mjög skammt yfir. Hvaða skilaboð eru það? Auðvitað skilaboð um að taka peningana hið allra fyrsta út. Þetta er efnahagsstjórn ríkisstjórnar hæstv. ráðherra Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í hnotskurn, annars vegar að fara með ósannindi gagnvart þjóðinni og leyna hana upplýsingum og síðan að koma fram á þennan fálmkennda, mótsagnakennda hátt sem grefur undan hagsmunum okkar. Hæstv. forseti. Er ekki komið nóg af þessu rugli, af þessum lygum, þessum ósannindum, þessum hálfkveðnu vísum? Er ekki kominn tími til að setja öll spilin á borðið gagnvart þjóðinni og gagnvart Alþingi Íslendinga? Það er löngu kominn tími til þess.