136. löggjafarþing — 17. fundur,  30. okt. 2008.

skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

[14:24]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Fl) (andsvar):

Herra forseti. Ég get tekið undir margt sem hv. þm. Pétur Blöndal kom inn á í þessari ræðu en því er ekki að leyna að upp á síðkastið, bæði hér í þinginu og á fundi í Iðnó um daginn, hefur hv. þingmaður talað um að á síðustu fjórum, fimm vikum hafi verið gerð ýmis mistök. Ég held að við eigum að tala skýrt og tæpitungulaust um hvað hefur farið miður og hvaða mistök hafa verið gerð. Ég held að okkur öllum sé hollt að þora að tala um það tæpitungulaust.

Það að hafa alþingismenn í rannsóknarnefndum getur svo sem verið ágætt en ég tel að það þurfi að byrja að skipa rannsóknarnefnd til þess að skoða einkavæðingu bankanna á sínum tíma, bæði Búnaðarbankans og Landsbankans og hvernig var staðið að því. Þetta var að mínu mati einkavinavæðing en ekki bara einkavæðing. Ég held að það væri allt í lagi að fara aftur til þess tíma og skoða upphafið að þessu. Einnig vita náttúrlega allir að þegar svokallað kvótakerfi var sett á byrjaði að myndast eignarhlutur hjá mönnum sem fengu úthlutað veiðiheimildum fyrir ekkert og gátu farið að leigja þær, selja og veðsetja og braska með þær. Þetta er auðvitað partur af því sem hefur orsakað ýmislegt sem hefur farið úrskeiðis hjá okkur.

Ég hvet hv. þingmann til þess að tala tæpitungulaust um það hvað hafi farið úrskeiðis síðustu fjórar, fimm vikur.