136. löggjafarþing — 17. fundur,  30. okt. 2008.

skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

[14:48]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður fer nokkuð úr einu í annað í andsvari sínu. Það er einfaldlega þannig að fyrir hendi er — það er alveg rétt sem hv. þingmaður rekur — að heimild Alþingis þarf til ýmissa ráðstafana úr ríkissjóði, en hv. þingmanni sést yfir að Alþingi hefur þegar samþykkt lög sem veita heimild til erlendrar lántöku til að efla gjaldeyrisvarasjóð Seðlabankans. Lagaheimildin er fyrir hendi, hún var samþykkt hér í vor og ég held að hv. þingmaður hafi greitt henni atkvæði. (Gripið fram í: Nei.) Á grundvelli þeirrar lagaheimildar er unnið að lántöku.

Stjórnvöld hafa verið í erfiðri stöðu að vinna úr þeim ábyrgðarkröfum sem komið hafa á íslenskt samfélag, sérstaklega vegna Icesave-reikninganna. Þar tel ég stjórnvöld hafa haldið mjög vel á málum og viðurkenningu á greiðsluskyldu hefur verið frestað. Við höfum ekki fallið í þá gryfju að semja á okkur ábyrgð umfram þjóðréttarlegar skuldbindingar. Af hálfu stjórnvalda hefur verið staðið fast við að ekki verði greitt umfram þjóðréttarlegar skuldbindingar og kallað eftir því að þeir sem gera kröfur á hendur okkur viðurkenni rétt okkar til að fá úr þeim skorið. Mér er hulin ráðgáta hvernig hv. þingmaður hefði viljað að með öðrum hætti yrði haldið á málinu en að neita viðurkenningu um greiðsluskyldu umfram skuldbindingar. Það er þvert á móti réttur og eðlilegur framgangsmáti af hálfu ríkisstjórnarinnar og á hún hrós skilið.