skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Frú forseti. Ég vil inna hv. þingmann og formann fjárlaganefndar, Gunnar Svavarsson, eftir því hvort honum finnist eðlilega staðið að málum af hálfu framkvæmdarvaldsins með því að ganga til svona viðamikilla samninga upp á hundruð milljarða króna, jafnvel margföld fjárlög íslenska ríkisins, og að ráðherrar skrifi undir slíkt samkomulag, þó með fyrirvara um samþykki Alþingis, án þess að þingmenn og án þess að fjárlaganefnd fái nokkuð að vita hvað í þessum gjörningi stendur.
Finnst hv. þingmanni eðlilegt að ráðherrar skrifi undir viljayfirlýsingar um skuldbindingar Íslendinga erlendis upp á jafnvel hundruð milljarða króna án þess að forsendur þess séu a.m.k. ræddar og farið yfir þær í þingnefndum Alþingis eða formlega af Alþingi? Er þessi háttur ásættanlegur að mati þingmannsins og fylgir það eðlilegum og góðum stjórnsýsluháttum að framkvæma þetta svona?