136. löggjafarþing — 17. fundur,  30. okt. 2008.

skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

[15:18]
Horfa

Gunnar Svavarsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við hv. þm. Jón Bjarnason erum nýlega búnir að rifja upp hverjir voru saman í för fyrir kosningarnar 1999 en þá fórum við saman yfir allt Norðvesturland. Ég er ekkert á leiðinni yfir í Vinstri græna (JBjarn: Þú ert nú um margt ágætur maður.) [Hlátur í þingsal] — þakka fyrir það. Það er líka ágætisfólk í öllum stjórnmálaflokkum, hv. þm. Jón Bjarnason, en þakka þér fyrir hvatninguna í minn garð.

Ég svaraði mjög almennt áðan og var ekki að tala um þetta tiltekna verkefni. Það má auðvitað túlka þetta eins og margir hafa gert að það gæti rúmast innan þeirra laga sem samþykkt voru í vor og gáfu ríkisstjórninni heimild til að fara í ákveðnar lántökur. Hins vegar sagði ég í mínu frábæra andsvari áðan við þig, hv. þm. Jón Bjarnason, að ég teldi að það mætti breyta mjög mörgu, ekki bara í þessu tiltekna máli heldur almennt í vinnuskipulagi og vinnutilhögun hjá framkvæmdarvaldinu. Ég hef verið talsmaður þess, og ætla ekkert að víkja mér undan því þó að ég sitji í stjórnarmeirihluta, að styðja vel við bakið á þeim sem starfandi eru inni á Alþingi og vilja efla þingið, eftirlitshlutverk þess og skýra leikreglur. Á sama hátt tiltók ég áðan að ég er ekki hræddur við að framselja valdið til þjóðarinnar, hvorki til einstakra sveitarfélaga eða þjóðarinnar í stærri kosningum. Ég hef góða reynslu af því að tekist sé á við stór mál á þann hátt.