136. löggjafarþing — 17. fundur,  30. okt. 2008.

skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

[15:56]
Horfa

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um að þetta þarf að upplýsa. Það er auðvitað ekki boðlegt að þingmenn á Alþingi Íslendinga skuli þurfa að vera að ráða í aðrar eins rúnir og fólgnar eru í einhverjum tilkynningum frá Seðlabanka Íslands og einhverjum óformlegum eða formlegum viðtölum við hæstvirta ráðherra. Það er búið að gefa út mjög misvísandi upplýsingar um þetta og þannig afhjúpa á hvern hátt ríkisstjórnin kýs að vinna. Hún kýs að vinna án þess að þjóðin eða þingið sé upplýst um þessi mál. Það er ámælisvert.

Ég hefði haldið að kollegar okkar, a.m.k. hv. þingmenn Samfylkingarinnar sem hafa talað um opna og gegnsæja stjórnsýslu, létu ekki bjóða sér vinnubrögð af þessu tagi. Mér þykir dapurlegt að horfa á þessa félaga okkar þurfa að kyngja þessum vinnubrögðum sem eru að sjálfsögðu forkastanleg. Ég vil líka benda á annað sem mér finnst forkastanlegt úr því að ég er farin að nota svo stór orð, hæstv. forseti, mér finnst ekki boðlegt að núna eftir hádegið, þ.e. frá kl. hálftvö þegar umræðan hófst eftir hádegið, hefur hæstv. forsætisráðherra ekki sést í þessum sal og enginn gerir athugasemdir við það. Við erum vön því að hann gangi hér inn og út eins og honum sýnist og þurfi ekki að vera viðstaddur klukkutímum saman. Það getur vel verið að hann sé að horfa á einhvern sjónvarpsskjá en hann á bara að vera hér þegar við erum að ræða þessi mál, alveg eins og hann átti að vera á þingi Norðurlandaráðs þegar verið var að ræða við hann um formennskuár Íslendinga í norrænu ráðherranefndinni sem verður árið 2009. Þá lét hann sig hafa það að fara úr salnum af því að hann þurfti að fara í mat með forsetanum. Það fannst honum mikilvægara en að svara þeim spurningum sem þingmenn á þingi Norðurlandaráðs hefðu þurft að bera upp við íslenska forsætisráðherrann.

Vinnubrögð af þessu tagi og viðhorf af þessu tagi eru ekki boðleg, hæstv. forseti.