136. löggjafarþing — 17. fundur,  30. okt. 2008.

skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

[18:27]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Já, auðvitað vöruðu margir við ýmsu, bæði ég og hv. þingmaður og eflaust hinir 60 kollegar okkar hér í þinginu. Skárra væri það nú, við erum í þjóðfélagsmálum, ræðum um þjóðfélagsmál og auðvitað eru alltaf ýmsar blikur á lofti sem við bendum á. En sá fellibylur sem gengur yfir heiminn í dag og ekki hefur sést í 100 ár og hið algjöra hrun hér á Íslandi er langtum meira en nokkur spáði eða sá nokkru sinni fyrir. Ég undirstrikaði það bara til þess að leggja áherslu á hversu alvarleg staðan væri.

Um eftirlitsstofnanir okkar og það sem hefði mátt gera — út af fyrir sig er margt rétt í því og eflaust hefur margt verið gagnrýnivert. Það sem ég var að segja í ræðu minni var hins vegar að þegar öll þau smáu atriði og einstöku þættir falla í gleymskunnar dá og menn horfa yfir þetta tímabil sem liðna sögu munu menn skýra hana þannig að árið 1994 hafi lítil þjóð reynt að fara inn á gríðarlega stóran markað og haldið að hún gæti með sínum litlu eftirlitsstofnunum, litlu pólitísku völdum og litlu varasjóðum tekið þátt í þeim leik. Hún hafi lært þá hörðu lexíu í hinum stóra og harða heimi viðskiptanna að það er ekki hægt að fá allt fyrir ekkert.

Ég vona að lærdómurinn verði líka sá að þess vegna hafi hún tekið ákvörðun um að verða fullgildur þátttakandi í því félagslega samstarfi sem fram fer á Evrópska efnahagssvæðinu og heitir Evrópusambandið.