skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé rétt sem hv. þm. Helgi Hjörvar segir að 18% stýrivöxtum sé ætlað að reyna að stöðva gjaldeyrisflæði út úr landinu. En ég óttast líka að 18% stýrivextir verði svo sligandi fyrir almenning og fyrirtækin í landinu að hækkunin muni ekki þjóna tilgangi sínum. Eins og ég sagði áðan hljóta gjaldeyrisviðskiptin að ráðast af trúverðugleika hagkerfisins sem heildar og hugsanlega fjöldagjaldþrotum, atvinnuleysi og öðru slíku. Það er ekki trúverðugt. Þó að vaxtahækkuninni sé ætlað að skapa þann trúverðugleika óttast ég að hún muni ekki hafa þau áhrif.
Hv. þingmaður nefnir síðan hinn litla gjaldmiðil sem við búum við, hvernig fara muni fyrir honum þegar hann verður settur aftur á flot því að það er jú ætlunin. Ég held að það sé alveg ljóst að við þurfum að endurskoða alla peningamálastefnuna í kringum þennan litla gjaldmiðil því að í hagkerfi með flotgengi sem við höfum búið við virðist krónan vera ansi lítil og veik.