136. löggjafarþing — 17. fundur,  30. okt. 2008.

skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

[18:55]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er satt að segja nokkuð erfitt að svara spurningu sem þessari af því að mér finnst ég sem og aðrir þingmenn ekki hafa fengið nægar upplýsingar um t.d. hvað við höfum í hendi og hvað felst í skilmálum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ég lýsti áðan áhyggjum mínum af skuldsetningu þjóðarinnar. Ég lýsti einnig áhyggjum mínum af krónunni sem litlum gjaldmiðli í hagkerfi með flotgengi.

Til þess að geta talað um þessi mál af einhverju viti finnst mér þingið þurfa að fá frekari upplýsingar. Nú er Úkraína að fá neyðarlán og þar krefst Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn þess að gjaldmiðill þeirra verði settur á flot. Það eru ýmis fleiri skilyrði sem þar hafa komið upp. Meðal annars er þess krafist að almenningssamgöngur verði ekki niðurgreiddar, að húsnæðiskostnaður verði ekki niðurgreiddur af ríkinu þannig að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setur mjög hörð skilyrði á velferðarkerfið, félagslega kerfið. Það veldur mér því áhyggjum að vita ekki hvaða skilmála við eigum von á heyra um frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum þótt okkur hafi verið sagt að þeir séu aðgengilegir.

Það er erfitt að taka afstöðu til peningamálastefnunnar meðan þokan er enn jafnþykk í efnahagsumræðunni og raun ber vitni. Ég ítreka að ég hef talsverðar áhyggjur af krónunni sem gjaldmiðli í þessu samhengi fljótandi gjaldmiðla.