136. löggjafarþing — 19. fundur,  4. nóv. 2008.

staða á fjölmiðlamarkaði á Íslandi.

[14:26]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það með hæstv. ráðherra að það er mjög þörf umræða sem hér fer fram í dag og merkileg tíðindi ef svo fer að allir einkareknir fjölmiðlar verði á sömu hendi. Ég tel fulla ástæðu til þess að rykið verði dustað af því frumvarpi sem þverpólitísk sátt náðist um fyrir einhverjum árum. Ég fagna því ef hæstv. menntamálaráðherra hyggst skipa samstarfshóp með þátttöku allra flokka þar sem farið verður yfir þessi mál því að við þurfum að setja skynsamleg lög um fjölmiðla.

Hér ríktu miklar deilur og ég ætla ekki að eyða tíma mínum í að rifja þær upp en um þessi lög þarf að ríkja sátt. Eignarhald á fjölmiðlum þarf að vera upplýst. Hugsanlega þarf að setja um það ákveðin mörk, hvort það eignarhald eigi að vera í einhverri tiltekinni dreifingu eða að eigendur eigi ekki að vera í einhverjum öðrum rekstri. Við þurfum að skoða þessi mál.

Það er mikilvægt að hér verði áfram fleiri en einn fjölmiðill, þ.e. að fjölmiðlar verði á fleiri en einni hendi. Lítum bara á forsíður blaðanna í dag þar sem verið er að fara yfir málefni þeirra starfsmanna Kaupþings sem tóku lán fyrir hlutabréfakaupum. Hlutverk fjölmiðla er að setja málin á dagskrá, að vekja upp spurningar, svara spurningum, ýta við þeim sem hér eru inni, ýta við þeim sem eru úti í viðskiptalífinu, úti í atvinnulífinu. Fjölmiðlar eru fjórða valdið og það þarf að vera virkt.

Ég vil sérstaklega nefna að þegar svona horfir þarf að undirstrika mikilvægi Ríkisútvarpsins. Ef svo fer að Ríkisútvarpið verður tekið af auglýsingamarkaði, sem er í góðu lagi að ræða enda á það við um marga ríkisfjölmiðla í heiminum, þarf að sjálfsögðu að tryggja tekjustofna þess á móti því að það skiptir miklu máli að hér verði áfram fjölmiðill í almannaeigu með almannahagsmuni að leiðarljósi. Það er ekki viðunandi að staða þess verði skert umfram það sem þegar er orðið.