136. löggjafarþing — 19. fundur,  4. nóv. 2008.

staða á fjölmiðlamarkaði á Íslandi.

[14:40]
Horfa

Róbert Marshall (Sf):

Frú forseti. Fyrirferð Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði veldur samþjöppun einkarekinna miðla á fjölmiðlamarkaði og veikir lýðræðið. Það segir sig sjálft að þegar fjölmiðlafyrirtæki standa illa og atvinnuleysi er meðal blaðamanna, þá laskast kínamúrar fréttamiðla. Auglýsingasamningurinn fer að skipta meira máli og ótti blaðamanna við að missa vinnuna eykur líkurnar á að þeir láti undan þrýstingi eða jafnvel ritskoði sjálfa sig.

Það þarf enginn að velkjast í vafa um að stjórnendur fjölmiðlafyrirtækja, hvort sem þau eru rekin af ríkinu eða einkaaðilum, reyna að hafa áhrif á fréttamiðla þó að engin dæmi þekki ég, enda reyna blaðamenn, ritstjórar og fréttastjórar að standa í fæturna í þessum efnum. Hjá Ríkisútvarpinu hefur útvarpsstjórinn ákveðið að hann skuli lesa fréttirnar, þar setur dagskrárstjórinn sjálfan sig á dagskrá og þeir eru á sama tíma talsmenn fyrirtækisins. Hjá 365 eða Rauðsól vill forstjórinn ákveða sjálfur hverjir skulu vinna á fréttastofu og fréttablaði. Það er skoðun mín að fjölmiðlalöggjöf eigi að takmarka eignarhald til að tryggja eðlilegt samkeppnisumhverfi og ritstjórnarlegt frelsi fréttamiðla þannig að almenningur geti treyst því að fjölmiðlar sem fjalla um þjóðfélagsmál gefi hlutlausa mynd af samfélaginu. Atvinnurekendur ættu samkvæmt slíkri löggjöf að gefa rökstuðning fyrir uppsögn blaðamanns. Þá mundi slík löggjöf undirbyggja og treysta siðareglur um sjálfstæði fréttamiðla gagnvart yfirstjórn og auglýsingadeild. Það að nánast allir frjálsir fjölmiðlar séu um það bil að færast á hendi eins og sama eigandans gerir slíka löggjöf nauðsynlega enda dregur hún verulega úr áhrifum eignarhalds á efni og innihald fréttamiðla.

Hið breska BBC er að draga saman seglin vegna fjármálakreppunnar, lækka laun þáttastjórnenda og stjórnenda en á Íslandi er boðið upp á kreppuafslátt til auglýsenda til að taka meira af kökunni sem fer smækkandi. Það gengur ekki. Það getur enginn keppt við þá forgjöf sem Ríkisútvarpið hefur í þessum efnum. Þess vegna fagna ég fyrirætlunum hæstv. menntamálaráðherra að skoða þessi mál og styð þær.