136. löggjafarþing — 19. fundur,  4. nóv. 2008.

Seðlabanki Íslands.

50. mál
[16:44]
Horfa

Flm. (Höskuldur Þórhallsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér sýnist mér hafa tekist að æsa þingmann Samfylkingarinnar upp og neyðist til að svara því sem ég tel að hafi verið afar ómaklega vegið að Framsóknarflokknum.

Það er rétt að Framsóknarflokkurinn var í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum síðustu 12 ár, hárrétt. Á þeim tíma var farið í mikla uppbyggingu á samfélaginu. Það má í rauninni líkja því við að hér hafi verið byggt stórt og mikið hús, atvinnuleysi var ekkert og kaupmáttur launa jókst. Hins vegar tók þjóðin ákvörðun um að Framsóknarflokkurinn bar skarðan hlut úr býtum í stjórninni og Samfylkingin tók við. En hvað sögðu framsóknarmenn þá? Við sögðum einfaldlega að það þyrfti að styrkja undirstöðurnar vegna þess að þótt húsið væri orðið stórt og mikið, þótt efnahagslífið væri stórt þá væru bankarnir stórir og það þyrfti að styrkja undirstöðurnar. Við sögðum líka: Ekki byggja ofan á húsið, ekki auka 20% á ríkisfjármálin vegna þess að þá getur þetta hús hrunið. Það er ekkert gaman að koma fram og vera „I told you so-maðurinn“ en þetta er hins vegar staðreynd. Þótt það sé óvinsælt að minna á það þá höfum við framsóknarmenn bent á að hér hafi þurft á undanförnum 18 mánuðum að grípa til efnahagsráðstafana. Hvaða aðgerðaáætlun er ríkisstjórnin eiginlega með? Hér var minnt á Ráðgjafarstofu heimilanna. Það þarf að stórauka fjárframlög til hennar og það þarf að gera það sem allra fyrst. Frumvarp um innheimtulögin tekur ekki gildi fyrr en um áramótin. Er þá ekki bara málið að flýta þeirri framkvæmd?

Við horfum fram á atvinnuleysi og það er útilokað að Samfylkingin geti með einhverri bókun í ríkisstjórn firrt sig allri ábyrgð á ástandinu eins og það er núna.