136. löggjafarþing — 20. fundur,  5. nóv. 2008.

sæstrengir í friðlandi Surtseyjar.

77. mál
[14:22]
Horfa

umhverfisráðherra (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Frú forseti. Hv. þm. Álfheiður Ingadóttir spyr:

„1. Hver var aðkoma umhverfisráðuneytis að veitingu leyfis fyrir lagningu sæstrengja um friðland Surtseyjar í ágúst sl.?“ Umhverfisráðuneytið átti ekki aðkomu, eins og það er orðað í fyrirspurninni, að veitingu leyfis fyrir lagningu sæstrengjanna um friðlandið. Í samræmi við auglýsingu um friðlandið er það hlutverk Umhverfisstofnunar að veita leyfi til framkvæmda innan friðlandsins og samkvæmt 38. gr. laga um náttúruvernd þarf að leita leyfis stofnunarinnar ef hætta er á að framkvæmdir spilli friðlýstum náttúruminjum. Einnig er spurt:

„2. Hversu langan tíma tók afgreiðsla Umhverfisstofnunar á umsókn Farice?“ Umsókn um leyfi frá Farice kom til Umhverfisstofnunar 11. júlí í sumar og var afgreidd frá stofnuninni 6. ágúst. Um leið og umsóknin kom var hún send til umsagnaraðila, þ.e. Surtseyjarfélagsins, ráðgjafarnefndar um Surtsey, heimsminjanefndar Íslands og menntamálaráðuneytisins. Stofnunin taldi ekki hægt að afgreiða umsóknina fyrr en úrskurður Skipulagsstofnunar um matsskyldu lá fyrir en sá úrskurður er skráður inn í skjalakerfi Umhverfisstofnunar 29. júlí.

„3. Var leitað umsagnar Surtseyjarfélagsins, sbr. 7. gr. auglýsingar um friðland í Surtsey nr. 50/2006, og ef svo er, hver var hún?“ Því er til að svara: Já, það var leitað eftir áliti Surtseyjarfélagsins sem lagðist gegn lagningu sæstrengsins.

„4. Var aflað umsagnar frá ráðgjafarnefnd um málefni friðlandsins, sbr. 4. gr. auglýsingarinnar, og ef svo er, hver var hún?“ Já, umsagnar ráðgjafarnefndarinnar var aflað. Nefndin lagðist gegn lagningu og í umsögn hennar kom m.a. fram að með vísun til 7. gr. auglýsingar um friðlandið í Surtsey eru framkvæmdir eins og lagning ljósleiðarastrengja óheimilar nema til komi leyfi Umhverfisstofnunar og sveitarstjórnar Vestmannaeyjabæjar að fenginni umsögn Surtseyjarfélagsins. Jafnframt minnti nefndin á að Surtsey var tekin inn á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna á 32. fundi heimsminjanefndar UNESCO þann 7. júlí.

„5. Var aflað umsagnar frá heimsminjaskrifstofu UNESCO og ef svo er, hver var hún?“ Það var ekki gert. Umhverfisstofnun leitaði ekki eftir umsögn heimsminjanefndar UNESCO, enda er það ekki í verkahring hennar.

„6. Var aflað umsagna frá öðrum aðilum og þá hverjum?“ Já, Umhverfisstofnun leitaði eftir umsögn frá heimsminjanefnd Íslands og frá menntamálaráðuneytinu. Í umsögn heimsminjanefndar Íslands, sem dagsett er 28. júlí 2008, kemur fram að nefndin hafi fjallað um málið á fundi sínum 26. maí 2008 og að ekki hafi komið fram athugasemdir við framkvæmdina á fundi nefndarinnar. Heimsminjanefnd Íslands, sem skipuð er af menntamálaráðherra, á að vera vettvangur samráðs um framfylgd samnings UNESCO frá 1972 um menningar- og náttúruarfleifð heimsins hér á landi, þar á meðal undirbúning að tilnefningu íslenskra staða á heimsminjaskrá. Í umsögn menntamálaráðuneytis kom fram að ráðuneytið telji ekki rétt að leggjast gegn lagningu strengjanna um friðlandið að höfðu samráði við heimsminjanefnd Íslands.

„7. Fer áðurnefnd lagning sæstrengja um friðland Surtseyjar saman við verklagsreglur, markmið friðlýsingar Surtseyjar og þá ábyrgð sem Íslendingar bera á verndun eyjarinnar með tilliti til stöðu hennar á heimsminjaskrá UNESCO?“ Innan friðlandsins er mannvirkjagerð, jarðrask, efnistaka og aðrar breytingar á landi og hafsbotni óheimilar nema með leyfi Umhverfisstofnunar og sveitarfélagsins, að fenginni umsögn Surtseyjarfélagsins. Í bréfi Umhverfisstofnunar, sem dagsett var 6. ágúst 2008, er tekin rökstudd afstaða til lagningar sæstrengjanna með tilliti til markmiðs, friðlýsingar Surtseyjar og annarra ákvæða um friðlýsingu eyjarinnar. Í þessu tilfelli var það mat Umhverfisstofnunar að lagning sæstrengjanna færi ekki gegn markmiðum friðlýsingarinnar. Ekki er ljóst hvort og þá hvaða áhrif lagningin hefur á stöðu eyjarinnar á heimsminjaskrá UNESCO á meðan heimsminjanefnd UNESCO hefur ekki fjallað um málið en menntamálaráðuneytið sem vörsluaðili UNESCO-samningsins fyrir hönd Íslands hefur sent skrifstofu samningsins upplýsingar um framkvæmdina.