136. löggjafarþing — 21. fundur,  6. nóv. 2008.

atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa.

115. mál
[15:05]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég fagna því sérstaklega að þetta frumvarp sem rætt hefur verið um í fjölmiðlum og menn hafa haft lausafregnir af utan frá er nú komið fram á hv. Alþingi, á þskj. 124, en efni þess er eins og hér hefur komið fram að greiða hærri atvinnuleysisbætur til launþega þegar starfshlutfall er lækkað vegna aðstæðna sem nú eru uppi á atvinnumarkaði. Það er gert með því að lengja tímabilið sem tekjutengdar atvinnuleysisbætur eru greiddar og ef frumvarpið verður að lögum munu atvinnuleysistryggingar bæta allt að 75% af þeirri tekjuskerðingu sem hlýst af slíku lækkuðu starfshlutfalli. Í öðru lagi er frumvarpinu ætlað að tryggja óbreytt réttindi gagnvart Ábyrgðasjóði launa ef til gjaldþrots fyrirtækisins kemur á næsta 14 mánaða tímabili frá og með 1. október sl. og fram til loka árs 2009.

Ég vil taka það fram að ég styð þetta frumvarp heils hugar en ég vil líka leyfa mér að taka undir tillögur og ábendingar hv. þm. Atla Gíslasonar að um leið sé rétt að bæta stöðu þeirra sem missa vinnuna og fara í nám. Vegna orða hv. þm. Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur áðan um að slíkt gæti tafið framgang málsins vil ég leyfa mér að segja það úr þessum stól að lýðræðið er seinvirkt og ef menn hefðu hugsað sér að flýta fyrir framgangi þessa máls í þinginu hefðu menn kannski átt að kynna þetta í fleiri þingflokkum en þingflokkum stjórnarflokkanna. Ég vek athygli á því að meðgöngutími þessa frumvarps er nákvæmlega einn mánuður í dag, það er heill mánuður síðan neyðarlögin voru sett og þetta frumvarp er að koma fyrir augu stjórnarandstöðunnar í dag. Ég efast ekki um að búið sé að kynna það og fara nákvæmlega yfir það í þingflokkum stjórnarflokkanna og búið að samþykkja það í ríkisstjórn. Ég vil bara nefna þetta af því að menn hafa líka bent hér á þá samvinnu, þá þverpólitísku samvinnu, þjóðstjórnarmódel sem hefur verið við undirbúning viðbragða Reykjavíkurborgar við því ástandi sem við nú búum við hér á landi. Þar er allt annað upp á teningnum en verið hefur hjá ríkisstjórninni sem treystir hvorki þingi né þjóð fyrir því sem hún er að bardúsa við.

Það kom fram í máli hæstv. ráðherra áðan að hún hefur hvatt til skerðingar vinnuframlags í stað þess að mönnum verði sagt upp. Ég er hjartanlega sammála því og tek heils hugar undir allt sem menn hafa sagt hér um það að öllu máli skiptir að fólk sé áfram á vinnumarkaði og að atvinnuleysi er það böl sem við verðum með öllum ráðum að reyna að bægja frá þjóðinni.

Gildistími þeirra bóta sem hér er rætt um vegna atvinnumissis, þ.e. skerðingar á starfshlutfalli, er áætlaður 5–6 mánuðir, frá 1. nóvember eða miðjum þessum mánuði — eins fljótt og hægt er að afgreiða þetta mál — til 1. maí 2009. Það er vissulega nokkur bjartsýni að ætla að þá verðum við komin út úr þeirri krísu sem við horfum nú fram á, en ég treysti þeim orðum ráðherrans að fylgst verði með og gripið inn í til að lengja gildistíma þessara laga ef nauðsyn krefur.

Ég neita því ekki, frú forseti, að ég hefði viljað sjá og heyra að hæstv. ráðherra hefði einnig hvatt fyrirtæki og stofnanir til að hafa breytingar á starfshlutfalli eða lækkun launa tímabundnar eins og hér er lagt til að lögin séu, í takt við þann gildistíma. Það er því miður ekki þannig í öllum fyrirtækjum og alls ekki í þeim þar sem stóru hópuppsagnirnar hafa verið að það sé umsamið að starfshlutfallið sé lækkað. Ég þekki til á vinnustöðum þar sem menn hafa verið kallaðir saman og þeim hefur verið tilkynnt einhliða að starfshlutfall yrði lækkað eða að laun yrðu lækkuð um 10–25%. Það er ekki verið að semja um eitt eða neitt þarna. Það er mjög mikilvægt að koma þeim skilaboðum út til atvinnulífsins að skerðingar af þessu tagi á vinnuframlagi manna verði og hljóti að vera til takmarkaðs tíma alveg eins og við erum að setja lög um bætur til takmarkaðs tíma. Við ætlum okkur út úr því feni sem við erum í. Það væri merki um að atvinnulífið og fyrirtækin hefðu trú á að við kæmumst út úr þessu ef aðgerðir sem gripið er til, eins og lækkað starfshlutfall eða lækkun launa, væru bundnar ákveðnum tíma, segjum í hálft ár eða eitthvað þess háttar.

Ég vil því hvetja hæstv. ráðherra til að brýna atvinnulífið, áfram auðvitað, til þess að skerða frekar atvinnuframlagið í stað uppsagnar en einnig að það sé þá til takmarkaðs tíma. Það er mikill þrýstingur á fólk í fyrirtækjum núna að leggja sitt fram, launaframlag og ógreiddan vinnutíma til fyrirtækja og stofnana. Það vekur manni umhugsun um hvort ekki sé rétt í slíkum tilfellum að launamenn í fyrirtækjum og stofnunum fái beina aðkomu að bókum og stjórnun þessara fyrirtækja þegar svo er komið. Ég er að tala um atvinnulýðræði, þetta er orð sem féll úr tísku með frjálshyggjunni og er nú nær horfið úr lögum. Nú er frjálshyggjan fallin af stalli og fallið var stórt hér á landi — stórasta fall í heimi, mundi kannski einhver segja — og þá er kominn tími til að endurmeta alla hluti og líka aðkomu launamanna að stjórnun og rekstri fyrirtækja. Ég vil nota þetta tækifæri til að skora á hæstv. félagsmálaráðherra að setja á stofn svo sem eins og eina litla nefnd til þess að leita leiða til að innleiða atvinnulýðræði í íslenskt atvinnulíf.

Frú forseti. Það hefur komið fram í umræðunni að ekki mun standa á stjórnarandstöðunni við að afgreiða þetta mál hratt og örugglega. Ég tek undir með þeim sem hér hafa sagt að nefndarfundir á laugardögum og sunnudögum eru engin goðgá í þeim efnum. Við skulum fara vandlega yfir málið og við skulum hleypa stjórnarandstöðunni að því og flýta okkur ekkert um of.

Ég verð að segja að 350 millj. kr. í þessu skyni eru hreinn smápeningur í samanburði við þann kostnað sem þjóðin þarf að bera núna af framgöngu og lifimáta útrásarliðsins. Ég minni á í því sambandi að einn einstaklingur fékk 300 millj. kr. bara fyrir að taka það að sér að vera bankastjóri í tilteknum banka sem nú er kominn í skjól ríkisins. Ég tek svo undir þau hvatningarorð að hv. félagsmálanefnd vinni þetta mál hratt og vel og það mun, eins og hér hefur komið fram, ekki standa á stjórnarandstöðunni í þeim efnum.