136. löggjafarþing — 21. fundur,  6. nóv. 2008.

fjármálafyrirtæki.

119. mál
[15:59]
Horfa

viðskiptaráðherra (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmönnunum báðum kærlega fyrir fínar umræður, ábendingar og góðar spurningar. Auðvitað vekur það upp umræðu um umhverfið allt og mætti hafa langt mál um það. Ég ætla aðeins að tæpa á því helsta. Staðan sem við erum í er eins og allir vita til komin vegna hins fyrirvaralausa hruns bankanna og allt í einu situr ríkið uppi með alla kerfisbankana í fanginu. Það má segja að þetta sé kerfishrun fjármálafyrirtækjanna, fyrir utan sparisjóðina sem nú er unnið ötullega að að koma til aðstoðar til að fjármálakerfi „B“ eða hitt fjármálakerfið okkar falli ekki líka heldur standi áfram með sóma.

Fyrsta verk okkar á þessum örlagadögum þegar bankarnir féllu var að reyna að koma í veg fyrir að bankastofnanir lokuðu, greiðslukerfin frysu og eins var reynt að gæta þess fólk gæti greitt með kortunum sínum, tekið út úr hraðbönkunum og sinnt daglegum viðskiptum. Var allt kapp lagt á það. Þess vegna gekk allt mjög hratt fyrir sig og þarf margt að endurskoða, laga og bæta í því sambandi.

Traust og gagnsæi eru þarna alger lykilorð og fylgja hér með góðar óskir handa bankastjórnum ríkisbankanna þriggja sem verða skipaðar af fjármálaráðherra í fyrramálið. Leitað hefur verið liðsinnis allra þingflokka til að tilnefna fólk í þessar stjórnir. Það skiptir öllu máli að þar sé faglegt, öflugt fólk, að skýr skil séu þannig að ekki sé um að ræða pólitísk afskipti af rekstri bankanna og að allar ákvarðanir þeirra verði umfram allt á viðskiptalegum forsendum af því að þeirra bíður gríðarlegt verkefni.

Aldrei hafa nein fyrirtæki, að ég held, í seinni tíma sögu okkar haft ríkari samfélagslega ábyrgð og skyldur en hinir nýju bankar sem þurfa að laga aðstæður bæði fyrirtækja og einstaklinga að erfiðum tímum, breyttum aðstæðum, tekjumissi, atvinnumissi, viðskiptasamböndum sem rofna og ýmsu öðru. Það á við um bæði fólkið og fyrirtækin og verður aldrei sundur skilið þar á milli. Þar eru ríkir hagsmunir og áttum við mjög fína umræðu um það í dag að frumkvæði hv. þm. Ögmundar Jónassonar. Auðvitað er þetta allt saman kostnaðarsamt. Kostnaður skilanefnda hefur komið fram að einhverju leyti, alla vega fastakostnaður, og verður allt gert upp og gert með gagnsæjum hætti. Auðvitað kostar ferlið fjármuni og ríkið þarf að setja mikið fé inn í bankana sem eigið fé. Um leið myndast gríðarlega mikill eignastokkur hjá ríkinu, eignir á móti skuldum, þannig að við getum ekkert annað en vonað að þegar upp verður staðið muni ríkið ekki hafa tapað á þessu heldur komið út á sléttu. Það er erfitt að segja til um það núna en auðvitað vonum við öll að það gerist.

Hvað varðar lög um nýju bankana munu þeir starfræktir samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki. Við höfum lög um banka almennt en ég efast ekki um að það geti verið mjög gagnlegt að vera með sérstök ákvæði í lögum um launakjör stjórnenda hinna nýju ríkisbanka. Hér eru lög almennt um bankana alla, ekki bara ríkisbankana þannig að ég veit ekki hvort þau eiga við hér en við reynum síðan að skoða það mál.

Vegna spurningar hv. þm. Jóns Bjarnasonar hvort von væri á nýjum lögum um ríkisbankana er það ekki á dagskrá. Þeir eru teknir til starfa og tóku til starfa strax um nóttina eftir að Landsbankinn féll. Það liggur mjög á að kjósa varanlegar bankastjórnir til að reyna að byggja aftur upp traust almennings til bankastofnananna.

Heildarendurskoðun á umhverfi fjármálafyrirtækja er að fara af stað. Hún mun m.a. fara fram með aðstoð erlendra sérfræðinga og að því ferli munu að sjálfsögðu allir þingflokkar á Alþingi koma. Það finnst mér skipta öllu máli. Við þurfum að gera heildarendurskoðun á öllu umhverfi fjármálafyrirtækja, ekki bara Íslendingar heldur munu allar þjóðir heimsins gera það af því að fjármálakerfi heimsins hefur beðið þvílíkan hnekki og regluverkið er víða í molum eftir þennan ágang, ýmislegt var gert í fjármálaumhverfinu, í lagagjörningum margra ríkja. Var sagt frá því í 60 mínútum á sunnudaginn þegar menn breyttu lögum um fjármálafyrirtæki og leyfðu aftur það sem bannað var árið 1907, að veðja á gengi fyrirtækja á markaði án þess að kaupa hlutafé sjálfur. Það var kallað „bucket shops“ í Bandaríkjunum. Það var svo aftur leyft 90 árum seinna í formi skuldatryggingaálags. Menn kaupa skuldatryggingar og veðja þar með í rauninni á stöðu fyrirtækja. Margt fór algerlega úrskeiðis í þessu kerfi og þarf að fara fram heildarendurskoðun á umhverfi fjármálafyrirtækjanna almennt.

Tvennt skiptir meginmáli nú: Að kjósa varanlegar bankastjórnir með því að tilnefna og skipa með fulltrúum þingflokka, með aðkomu Alþingis alls, og að setja í farveg skoðun og rannsókn á því hvað gerðist. Rannsóknin er þríþætt: Í fyrsta lagi er um að ræða sérstaka rannsókn sem ekki er ólíklegt að Alþingi standi að með aðkomu erlendra sérfræðinga og fleiri utanaðkomandi aðila á stjórnvöldum og stofnunum stjórnvalda. Í öðru lagi á að rannsaka hvað gerðist inni í bönkunum — rannsókn á því hófst reyndar strax — og í þriðja lagi er lögregluþátturinn sjálfur. Einhvern veginn þannig mun heildarendurskoðun á umhverfi og lögum um fjármálafyrirtæki verða.

Það skiptir hins vegar gífurlega miklu máli frá fyrsta degi í starfsemi nýju bankanna með bankaráðunum að setja hinum nýju bankastjórnum skýrar og gagnsæjar verklagsreglur þannig að það sé alveg ljóst hvernig fólk á að starfa þar. Verður það hlutverk okkar hér á Alþingi og bankaráðanna sjálfra að setja þær. Ég efast ekki um að skipanir í nýju bankaráðin muni takast vel og ég fagnaði því mjög að leitað skyldi liðsinnis allra þingflokka að tilnefna í stjórnirnar. Það skiptir gífurlegu máli að skipanir í stjórnir fjármálafyrirtækja almennt takist vel, sérstaklega við þær aðstæður sem nú eru á Íslandi. Okkar bíður það mikla verkefni að byggja upp traust og öflugt kerfi eftir hrun bankanna og vona ég að það takist alveg sérstaklega vel.

Hvað varðar það sem hv. þm. Atli Gíslason nefndi um hvort ákvæði væri óþarft er það að mínu mati mikilvægt og nauðsynlegt af því að í lögunum er nú kveðið á um að FME skuli afturkalla starfsleyfið þegar kveðinn hefur verið upp úrskurður um slit fyrirtækis samkvæmt 12. gr. laganna. Það er mikilvægt að það sé alveg á hreinu og viðskiptanefndin fer örugglega yfir málið af mikilli vandvirkni. Ábendingarnar voru allar góðar, gagnlegar og málefnalegar og gagnast okkur í þeirri miklu vinnu sem bíður okkar. Ég þakka aftur fyrir þessa fínu umræðu.