störf þingsins.
Frú forseti. Vandi minni fjármálafyrirtækja á Íslandi er sá sami og vandi margra annarra fyrirtækja. Þegar bankakerfið hrynur, þ.e. þrír stærstu bankar landsins fara á hausinn, veldur það ákveðnum áhrifum sem kalla má „dómínó-áhrif“. Ég tel að það sé mjög brýnt í þessari stöðu að bjarga fleiri dómínó-kubbum frá því að falla með því að veita viðbótarfresti og svo framvegis og það hefur verið gert.
Vandi minni fjármálafyrirtækja er í fyrsta lagi sá að í sumar, við allt aðrar aðstæður, var krafa margra, bæði bankamanna og sumra stjórnmálamanna, að auka flæði fjármagns til bankanna. Það var gert með því að þeir gátu sett að veði bankabréf annarra fjármálastofnana hjá Seðlabankanum. Þegar útgefendur þeirra bréfa fóru á hausinn hvarf veðið og eftir stóð skuldin og það er einn vandinn. Annar vandi er sá að bankarnir höfðu í þeirri stöðu sem þá var og sem talið var eðlilegt, stundað útlán sem í dag reynast hafa verið mjög áhættusöm. Það er annar vandi. Þriðji vandinn er svo lausafjárvandinn sem allar lánastofnanir í heiminum glíma við um þessar mundir. Svo er það smæðin sem gerir það að verkum að þeir þola ekki þessi átök hver um sig.
Lausnirnar felast í því að að borðinu komi kröfuhafar, innlendir og erlendir, Seðlabankinn jafnt sem aðrir, og breyti kröfum sínum annaðhvort í langtíma víkjandi lán eða langtímalán eða jafnvel hlutabréf. Fundin hefur verið lausn sem allir græða á, jafnt kröfuhafar sem stofnunin sjálf, því að ég tel mjög mikilvægt að þessar stofnanir starfi áfram. (Forseti hringir.) Sumar þeirra eru það eina sem við eigum eftir af slíkum stofnunum sem njóta virðingar í útlöndum.