136. löggjafarþing — 24. fundur,  12. nóv. 2008.

störf þingsins.

[13:45]
Horfa

Helga Sigrún Harðardóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir hlýjar móttökur sem ég fékk í þinginu í gær, bæði frá þingmönnum og starfsfólki þó að aðstæður væru allsérkennilegar. Ég er mjög þakklát fyrir að eiga hér góða að.

En það er undarlegt að koma hér inn og finnast maður sitja í kolniðamyrkri með þjóðinni þar sem menn keppast við að segja draugasögur og ríkisstjórnin, sem hefur falið slökkvarann, neitar að kveikja ljósið. Við slíkar kringumstæður þarf auðvitað að huga að mörgu og einhvers staðar verður maður að byrja. Eitt af því er að losa um skuldafjötra sem mörg heimili sitja föst í og þar gerir margt smátt eitt stórt. Á þessari stundu standa þúsundir bíla ónotaðir sem hægt væri að selja úr landi í dag. Að hluta til er um að ræða bíla sem eru í eigu einstaklinga sem gætu rýmkað svigrúm sitt til reksturs fjölskyldunnar en einnig er um að ræða bíla í eigu bílaumboða. Í þeim geira vinna upp undir þúsund manns og þeirra störf eru í hættu. Ég hef heimildir fyrir því að starfsmenn einstakra bílaumboða eru þessa dagana að samþykkja töluverða launalækkun frá sjálfum sér til að liðka til fyrir rekstrinum og þar hafa uppsagnir verið miklar undanfarna mánuði.

Ég vil því spyrja hv. þm. Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformann Samfylkingarinnar, um það hvað líði afgreiðslu frumvarps fjármálaráðherra sem ætlað er að liðka til fyrir sölu notaðra bíla á landinu og hvort það sé eitthvað sérstakt í málinu sem þingflokkur Samfylkingarinnar telur hættulegt.