fjárhagsleg fyrirgreiðsla hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður hóf mál sitt á að kvarta undan að þingmenn hefðu ekki nægan áhuga á því sem hann hefði að segja. Ég vil mótmæla því. (Gripið fram í.) Ég sat hér og hlustaði með andakt á ræðu hv. þingmanns og get tekið undir ýmislegt sem þar kom fram, m.a. að tryggja verði að ekki verði um nokkra mismunun að ræða milli fólks eða fyrirtækja þegar kemur að því að gera upp skuldir. Augljóst er að mikið verkefni er fram undan í að tryggja að fólk og fyrirtæki komist þannig í gegnum kreppuna að við getum farið að byggja upp á nýjan leik og það er kannski helsta verkefni stjórnvalda næstu mánuðina.
Eitt vakti þó sérstaka athygli mína. Hv. þingmaður galt varhuga, ef ég skildi hann rétt, við því að setja krónuna á flot eða a.m.k. óttaðist að bæði einstaklingar og fyrirtæki færu illa út úr því. Gott og vel. Hv. þingmaður getur haft þá skoðun en í umræðu um þessi mál hefur mikið verið talað um plan B. Ýmsir hafa kallað eftir því að það hefði þurft að vera plan B en enginn hefur komið fram með það, þannig að ég velti fyrir mér, hver hin leiðin sem við gætum farið er? Menn hafa leyft sér í einhvers konar — ég veit ekki hvort ég á að segja — gáleysi að henda fram ýmsum hugmyndum eins og norsku krónunni, jafnvel einhliða upptöku gjaldmiðils o.s.frv. sem ég er ekki viss um.
Hver er hin leiðin? Mig langar til að heyra hv. þingmann greina frá henni ef hann óttast (Forseti hringir.) að setja krónuna á flot, sem ég held að sé forsenda þess að krónan komist á lappirnar aftur. Hver er hin leiðin?